Menning

Þar rímar saman hljóð og mynd

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Við erum að mæla allt út,“ segir Tumi sem var í óðaönn að koma fyrir græjum í Hafnarborg þegar myndin var tekin.
„Við erum að mæla allt út,“ segir Tumi sem var í óðaönn að koma fyrir græjum í Hafnarborg þegar myndin var tekin. Vísir/GVA
„Við erum að mæla allt út, stillingarnar þurfa að vera nákvæmar,“ segir Tumi Magnússon þar sem hann er að setja upp vídeóskerma í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar opnar hann sýningu á morgun, laugardag, klukkan 15. Hún nefnist Largo Presto og einkennist af hljóðum og hreyfingu.

Tumi kveðst oft hafa sett upp vídeósýningar áður en þessi sé sú stærsta, með átta skjáum.

Myndefnið gefur allt frá sér takt eða síbreytilega takta, enda sýningin eiginlega eins mikið hljóðverk og myndverk, að sögn listamannsins sem ekki vill skemma upplifun sýningargesta með of miklum útskýringum.

Hann er þekktur fyrir að vinna með hversdagslega hluti eða athafnir sem hann sýnir ekki á hversdagslegan hátt, heldur með næmi og hárfínum húmor.

Sýningin er í efri sal Hafnarborgar. Hluti hennar er prentaðar ljósmyndir og þar kemur líka hraði inn í, en á annan hátt en í vídeóinnsetningunni.

Tumi hefur búið í Danmörku í tíu ár ásamt konu sinni, Ráðhildi Ingadóttur myndlistarkonu. Hann segir þau koma til Íslands á sumrin og dvelja þá mest á Seyðisfirði. Þar sé gott að vera, „fallegur staður, gróska og gott andrúmsloft,“ eins og hann orðar það.  En hvernig finnst honum að vera heima á þorranum? „Mér finnst það frábært,“ segir hann sannfærandi.

„Hressandi að lenda í byl þótt eflaust geti það orðið leiðigjarnt.“

Hann kveðst eiga eftir að finna stað fyrir sýninguna Largo Presto í Danmörku en hún fer til Úrúgvæ í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×