Telur ekki heppilegt að halda opið prófkjör 6. ágúst 2008 14:14 Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Á nýlegum fundi sem Hanna Birna Kristjánssdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt með stjórnum hverfafélaga flokksins í borginni, lýsti hún þeirri skoðun sinni að ekki væri heppilegt að halda opið prófkjör fyrir næstu kosningar. Á fundinum lagði Hanna þess í stað til að stillt verði upp á framboðslista. Þessi tillaga féll í grýttan jarðveg á fundinum en heimildir Vísis herma að margir sjálfstæðismenn vilji gefa nýjum einstaklingum tækifæri á að bjóða sig fram eftir vandræðaganginn á þessu kjörtímabili. Hanna Birna Kristjánsdóttir er hins vegar hrædd við þau átök sem prófkjöri kynni að fylgja. Þar að auki gerir hún sér að sjálfsögðu grein fyrir því að erfitt verður fyrir uppstillingarnefnd að ganga framhjá henni þegar kemur að því að skipa í efsta sæti listans. Sjálfstæðisflokkurinn stillti síðast upp framboðslista þegar Birni Bjarnasyni var falið að fella Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og R-listann árið 2002. Björn var þá settur oddviti í stað Ingu Jónu Þórðardóttur, eiginkonu Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Ekki náðist í Hönnu Birnu við gerð fréttarinnar.
Mest lesið Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Erlent Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Innlent Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Erlent Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Innlent Þingmenn á síðustu metrunum Innlent Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Erlent Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Fleiri fréttir Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent