Viðskipti innlent

Tchenguiz vill 400 milljarða frá Kaupþingi, Jóhannesi og fleirum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Tchenguiz vill meina að slitastjórn og skilanefnd Kaupþings hafi platað SFO til að rannsaka hann. Fyrir vikið hafi hann misst af viðskiptatækifærum og þurft að greiða hærri vexti en ella.
Tchenguiz vill meina að slitastjórn og skilanefnd Kaupþings hafi platað SFO til að rannsaka hann. Fyrir vikið hafi hann misst af viðskiptatækifærum og þurft að greiða hærri vexti en ella. Vísir
Bresk-íranski fasteignamógúllinn Vincent Tchenguiz hefur höfðað 2,2 milljarða punda skaðabótamál á hendur endurskoðunarfyrirtækinu Grant Thornton, slitastjórn Kaupþings, Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni, meðlimi slitastjórnarinnar, og fleiri aðilum. Telegraph greinir frá.

Málið er höfðað fyrir breskum dómstólum vegna tjóns sem hann varð fyrir í tengslum við rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar Serious Fraud Office á honum vegna meintra efnahagsbrota. Mál SFO var fellt niður.

Tchenguiz telur að Grant Thornton, Kaupþing og starfsmenn þeirra beri ábyrgð á tilhæfulausri rannsókn á hendur sér. Serious Fraud Office þurfti í júlí síðastliðnum að biðja Tchenguiz opinberlega afsökunar og greiða honum 3 milljónir punda í miskabætur.

Auk áðurnefndra aðila hefur Tchenguiz höfðað mál á hendur Stephen Akers og Hossein Hamedani sem eru hluthafar og starfsmenn Grant Thornton.

Málsókn Tchenguiz byggir á því að þessir aðilar hafi unnið saman að því að fá SFO til að rannsaka sig í þeirri von að það leiddi til ógildingar á 1,6 milljarða punda kröfu hans á Kaupþing banka.

Upphæðin sem Tchenguiz vill fá er tvískipt; annarsvegar 1,6 milljarða punda krafan sem hann lagði upphaflega fram og svo skaðabætur fyrir töpuð viðskiptatækifæri og verri lánakjara vegna rannsóknarinnar að andvirði 600 milljóna punda.

Samtals er um að ræða jafnvirði rúmlega 427 milljarða króna. Til að setja upphæðina í samhengi er það rúmlega hundrað milljörðum króna meira en íslenska ríkið leggur til velferðar og menntamála í ár.

Uppfært

Í frétt Telegraph segir að Stephen Akers og Hossein Hamedani hafi setið í skilanefnd Kaupþings banka. Það er hins vegar ekki rétt og hefur nú verið leiðrétt í frétt Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×