Golf

Tárvotur Jason Day hætti keppni vegna veikinda móður sinnar | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ástralski kylfingurinn Jason Day brotnaði saman á blaðamannafundi eftir að hafa þurft að draga sig úr keppni á WGC Match Play í Texas vegna veikinda móður sinnar.

Þegar Day dró sig úr keppni héldu margir að það væri vegna meiðsla. En Ástralinn greindi svo frá því að hann hafi ekki getað haldið keppni áfram vegna veikinda móður sinnar sem er með lungnakrabbamein.

„Þetta hefur verið mjög erfitt. Mamma mín hefur verið hérna í Bandaríkjunum og er með lungnakrabbamein. Í upphafi árs var henni sagt að hún ætti 12 mánuði eftir ólifaða,“ sagði Day.

Að hans sögn fær móðir hans mun betri meðhöndlun í Bandaríkjunum en í Ástralíu.

„Greiningin er mun betri hér. Hún er á leið í aðgerð og ég get ekki hugsað mér að vera úti á golfvelli út af því sem hún er að ganga í gegnum,“ sagði Day sem var aðeins 12 ára þegar hann missti föður sinn úr lungnakrabbameini.

„Ég hef einu sinni gengið í gegnum þetta með pabba minn og veit hversu erfitt þetta er. Það er erfitt að horfa á mömmu ganga í gegnum þetta. Núna ætla ég að vera til staðar fyrir mömmu og vonandi fer allt vel.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×