Tap Skipta hf. fimmfaldast milli ára Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 13. mars 2014 12:52 Orri Hauksson forstjóri Skipta segir tap félagsins ekki hafa áhrif á fjárhagslegan styrk félagsins né getu þess til að standa við allar sínar skuldbindingar. Vísir/Pjetur
Rekstrarhagnaður Skipta hf. á árinu 2013 fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 8,3 milljörðum króna samanborið við 7,4 milljarða árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem birtur var í dag. Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 45,0 prósent og eigið fé er 26,4 milljarðar króna. Eigið fé var 7,9 milljarðar í lok árs 2012 og eiginfjárhlutfall 10,2 prósent. Sala nam 29,9 milljörðum króna samanborið við 28,9 milljarða árið áður og er aukningin 3,6%. Kostnaðarverð sölu var 15,7 milljarðar og stendur í stað milli ára. Rekstrarkostnaður lækkar um 79 milljónir króna milli ára, var 9.467 milljónir króna samanborið við 9.546 milljónir króna árið 2012. Bókfært tap á árinu 2013 nam tæpum 17 milljörðum króna samanborið við 3,4 milljarða tap árið áður. Tapið skýrist af alls 19,6 milljarða gjaldfærslu eftirtalinna liða: Rúmlega 14 milljarða virðisrýrnun viðskiptavildar, ríflega 3 milljarða niðurfærslu á kröfu á hendur Glitni hf. og 2,6 milljarða gjaldfærslu í varúðarskyni vegna endurákvörðunar skatta. Þessir liðir hafa ekki áhrif á fjárstreymi.Orri Hauksson forstjóri Símans hf. segir uppgjörið einkennast af mikilli virðisrýrnun óefnislegra eigna sem valdi verulegu tapi hjá samstæðunni. „Slíkt tap hefur ekki áhrif á fjárhagslegan styrk félagsins né getu þess til að standa við allar sínar skuldbindingar. Efnahagsreikningurinn endurspeglar nú betur markaðsvirði félagsins við fjárhagslega endurskipulagningu á seinasta ári. Við teljum rétt að beita ítrustu varúð við mat á óefnislegum eignum og á einskiptiskostnaði. Alls eru gjaldfærðir 19,6 milljarðar króna vegna þessara liða í uppgjöri ársins og munar um minna,“ er haft eftir Orra í tilkynningunni. Hann tekur ennfremur fram að EBITDA félagsins hækki milli ára og starfsfólk og stjórnendur hafi unnið gott starf á undanförnum árum. „Það er ljóst að góður grunnur hefur verið lagður fyrir framtíðina og fyrirtækið stendur mjög sterkt eftir fjárhagslega endurskipulagningu seinasta árs,“ segir Orri. Heildarlaun og þóknanir til stjórnenda félagsins á árinu 2013 námu 548 milljónum króna, samanborið við 501 milljón árið 2012. Hinn 12. febrúar síðastliðinn var tilkynnt að stjórnir Skipta og Símans hefðu ákveðið að sameina rekstur félaganna undir nafninu Síminn hf. Sameiningin var gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem ekki hefur lokið málsmeðferð.
Mest lesið „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Sjá meira