Handbolti

Tandri Már markahæstur í tapi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Heimasíða Ricoh
Nýliðar Ricoh töpuðu enn einum leiknum í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Liðið mætti Skövde og tapaði, 27-19.

Tandri Már Konráðsson var markahæstur í liði Ricoh með fimm mörk en staðan í hálfleik var 13-11, Skövde í vil.

Ricoh er í þriðja neðsta sæti deildarinnar með tvö stig að loknum fimm umferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×