Skroll-Lífið

Fréttamynd

Kvenleg útkoma Andersen og Lauth - sjáðu myndirnar

Andersen & Lauth sýndi haust og vetrarlínu sína 2013 á Reykjavik Fashion Festival í Hörpu í gær. Þetta er í fjórða sinn sem tískuhátíðin er haldin og þótti hún takast einstakega vel í ár. Fjöldi virtra blaðamanna, bloggara og stílista í tískuheiminum voru viðstaddir sýningarnar sem voru hver annari glæsilegri. Hér má skoða myndirnar sem teknar voru af Andersen & Lauth sýningunni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Hagaskóli slær í gegn

Meðfylgjandi myndir tók Heiðdís Einarsdóttir baksviðs hjá nemendum Hagaskóla sem hafa slegið í gegn með söngleikinn Konungur ljónanna í leikstjórn Sigríðar Birnu Valsdóttur leiklistarkennara við skólann en tónlistarstjóri er Björn Thorarensen. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar og aukasýningarnar að sama skapi.

Menning
Fréttamynd

Fjölmenni á RFF

Fjölmenni mætti á RFF, Reykjavík Fashion Festival, í Hörpu í dag. Eins og sjá má á myndunum var andrúmsloftið frábært á meðal gesta sem nutu þess að sjá nýja haust- og vetrarlínu frá Andersen & Lauth, Huginn Muninn, Framers Market, Jör, Ellu og Munda og 66ºnorður.

Lífið
Fréttamynd

Svaka stuð á mannskapnum

Meðfylgjandi myndir tók Sigurjón Ragnar þegar fyrirtækið Wedo fagnaði í höfuðstöðvunum í Bolholti í gærkvöldi. Eins og sjá má á myndunum var stuð á mannskapnum.

Lífið
Fréttamynd

Hönnunarverðlaun Fhi afhent í fyrsta sinn

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Kjarvalsstöðum í gær þegar Hönnunarverðlaun Félags húsgagna- og innanhússarkitekta voru afhent í fyrsta sinn við hátíðlegt tækifæri. Verðlaunaflokkarnir voru; Heimili, Þjónusta, Afþreying og Húsgögn.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Jæja nú vinnum við Eurovision

Meðfylgjandi myndir tók Stefán Karlsson ljósmyndari þegar framlag Íslands til Eurovision, Ég á líf, var frumflutt en það verður flutt með íslenskum texta í Svíþjóð í vor. Eins og sjá má var andrúmsloftið gott og fólk ánægt með ákvörðun Örlygs og Péturs að flytja lagið á íslensku.

Lífið
Fréttamynd

Okkur þykir svo vænt um textann fyrst og fremst

"Okkur þykir svo vænt um textann fyrst og fremst," segja félagarnir meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði sem Davíð Lúther tók við þá Pétur Örn Guðmundsson og Örlyg Smára höfunda framlags Íslands til Eurovision í ár.

Lífið
Fréttamynd

Ólafur Ragnar sló í gegn á RFF

Meðfylgjandi myndir voru teknar í opnunarteiti RFF 2013 á Hótel Borg í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson setti hátíðina með ræðu sem sló í gegn hjá prúðbúnum gestum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fjárfesti í íbúð í Stokkhólmi - sjáðu myndirnar

Íbúðin, sem er 52 fermetrar að stærð, er einstaklega falleg eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Íbúðin kostaði 3.300.000.- sænskar krónur eða 65 milljónir íslenskar krónur. Eins og sjá má er rými íbúðarinnar mjög vel nýtt. Þá er arinn í svefnherberginu og stórar svalir. Takið eftir gólfflísunum á ganginum en þær eru upprunalegar frá árinu 1800.

Lífið
Fréttamynd

Verðlaunaafhending Gulleggsins

Úrslit og verðlaunaafhending Gulleggsins 2013, frumkvöðlakeppni Innovit, fóru fram síðastliðinn laugardag í Háskólanum í Reykjavík. Þar kynntu 10 teymi viðskiptahugmyndir sínar fyrir dómnefnd en alls hófu 327 hugmyndir keppni í janúar.

Lífið
Fréttamynd

Ræddu stöðu kvenna í fjölmiðlum

í ljósi sviptinga á fjölmiðlamarkaði í síðustu viku boðaði Félag kvenna í fjölmiðlum félagskonum og þeim sem vildu að hittast á kaffi Sólon í kvöld. Þar mættu Sigríður Dögg Auðunsdóttir, nýráðinn ritstjóri Fréttatímans, og Steinunn Stefánsdóttir, fráfarandi aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, og ræddu stöðu kvenna í fjölmiðlum. Eins og sjá má á myndunum sem Daníel Rúnarsson ljósmyndari tók var fjölmennt á fundinum.

Lífið
Fréttamynd

Dorrit sló í gegn

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Lífstölti, töltkeppni kvenna, sem fram fór í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ á laugardag. Mótið var einstaklega vel heppnað í ár og þétt setið í stúkunni eins og sjá má á myndunum. Það var ekki að spyrja að því að Dorrit Moussaieff forsetafrú sló í gegn í brjóstamjólkurreiðinni sem og aðrir þátttakendur.

Lífið
Fréttamynd

Bæði Mikael og Steinunn mættu

Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru í Gerðarsafni í Kópavogi í gær þegar verðlaun fyrir bestu blaðaljósmyndir og blaðamennska ársins 2012 voru veitt var andrúmsloftið frábært.

Lífið
Fréttamynd

Kynlífsþáttur vekur lukku

Meðfylgjandi myndir voru teknar í frumsýningarpartí sjónvarpsþáttarins Tveir plús Sex á Austur í gær. Þátturinn, sem Sunneva Sverrisdóttir og Veigar Ölnir Gunnarsson stjórna, verða sýndir á fimmtudagskvöldum á Popptíví í vetur. Fyrsti þátturinn vakti mikla lukku gesta.

Lífið
Fréttamynd

Fjallað um Lífstöltið í Íslandi í dag

Lífstöltið er haldið í þriðja sinn í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ á morgun laugardag og er ætlunin að styrkja kvennadeild Landspítalans. Í fyrra söfnuðust 1300 þúsund krónur og er markmiðið í ár að gera ennþá betur. Dorrit Moussaieff forsetafrú mun setja Lífstöltið á morgun klukkan 14:00 og Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari mun einnig mæta og spreyta sig í fyrsta sinn á hestbaki.

Lífið
Fréttamynd

Laddi mjög persónulegur

Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingu fyrir einleikinn Laddi lengir lífið. Um er að ræða frumsamið efni sem er enn í mótun þannig að enn er verkið að smella saman og verða til.

Lífið
Fréttamynd

Arna skemmti sér í Playboy-höllinni

"Ég fór út til Los Angeles í janúar í myndatöku hjá Playboy vegna þess að ég vann nóvemberkeppnina. Svo er ég búin að fá boð um að vinna úti í Cancun í Mexíkó sem Playboy kanína í sumar ef ég vil."

Lífið
Fréttamynd

Nýtt líf fagnar með flottum konum

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var glatt á hjalla í vorfagnaði Nýs lífs sem fram fór í Hafnarhúsinu í vikunni. Þá var útkomu vortískublaðsins með Eddu Hermanns í glæsilegu forsíðuviðtali fagnað.

Lífið
Fréttamynd

Glaðir gestir á Ímark

Á föstudaginn var fór árlegur Ímark dagur fram í Hörpu. Eins og sjá má á myndunum var gleðin við völd þar sem allar auglýsingastofur landsins komu saman ásamt fleirum. Síðar um kvöldið fór fram afhending íslensku auglýsingaverðlaunanna, Lúðurinn en það var auglýsingastofan Hvíta húsið sem fékk flest verðlaun eða fimm lúðra. Næst á eftir var Íslenska með fjóra lúðra og Fíton með tvo lúðra. Jónsson og Le´macks, Leynivopnið, Wonwei og Tjarnargatan hlutu einn lúður hver.

Lífið
Fréttamynd

Ný jógastöð opnar í Nethyl

Meðfylgjandi myndir voru teknar í formlegri opnun jógastöðvarinnar Byoga.is sem staðsett er í Nethyl. Í stöðinni er notast við margs konar æfingar eða sambland af jóga, pilates, dansi og ballet.

Lífið
Fréttamynd

Æfa pósur fyrir mót

Nú eru fjórar vikur í Íslandsmót IFBB í vaxtarrækt og fitness sem fram fer um páskana. Á meðfylgjandi myndum sjást keppendur í módelfitness æfa pósur undir handleiðslu þjálfara frá ifitness.is.

Lífið
Fréttamynd

Gleðin við völd

Meðfylgjandi myndir voru teknar í anddyri Háskólans í Reykjavík í gær þegar íslenska hátæknifyrirtækið Syndis sem sérhæfir sig í upplýsingaöryggi á Íslandi fagnaði. Ari Eldjárn mætti á staðinn og hressti mannskapinn við eins og honum einum er lagið.

Lífið
Fréttamynd

Flottir gestir á Lúðrinum

Meðfylgjandi myndir voru teknar á árlegri afhendingu Íslensku auglýsingaverðlaunanna sem ber heitið Lúðurinn. Lúðurinn er veittur í fimmtán flokkum þar sem auglýsingar sem skara fram úr á árinu 2012 eru verðlaunaðar.

Lífið
Fréttamynd

Baksviðs á Mary Poppins

Meðfylgjandi myndir voru teknar baksviðs eftir frumsýnignu söngleiksins Mary Poppins í Borgarleikhúsinu um helgina. Þá má einnig sjá myndir í gleðskapnum sem leikhúsfólk og aðstandendur héldu eftir sýningu.

Lífið
Fréttamynd

Gjörbreytt Britney Spears

Britney Spears, 31 árs, stal vissulega senunni með glænýjan háralit en hún hefur látið lita ljósa hárið brúnt...

Lífið
Fréttamynd

Komu saman og fögnuðu vináttunni

Vinapör eins og fjölmiðlamennirnir Sveppi, Egill og Auddi, Hraðfréttastrákarnir Benedikt og Fannar, Magni og Hreimur, kokkarnir Jón Arnar og Rúnar kokkar, veitingamennirnir Simmi og Jói og auglýsingagerðamennirnir Sammi og Gunni...

Lífið
Fréttamynd

Frægir á frumsýningu Mary Poppins

Frumsýningargestir fögnuðu ákaft í lok frumsýningar söngleiksins Mary Poppins í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi en gestir voru sammála um að sýningin hafi verið frábær - töfrum líkust. Eins og sjá má á myndunum mættu fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar á sýninguna sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir.

Lífið
Fréttamynd

Sjálfstæðiskonur fagna

Landssambands sjálfstæðiskvenna stóð fyrir glæsilegum kvöldverði á veitingastaðnum Nauthól í Reykjavík á fyrsta degi landsfundar þann 21. febrúar.

Lífið
Fréttamynd

Pjattrófur og Nude Magazine fagna vorinu

Meðfylgjandi myndir tók Sigurjón Ragnar á veitingastaðnum Loftið í Grand Mariner veislu á vegum NUDE magazine og Pjattrófanna í gærkvöldi. Fjöldi manns mætti og fagnaði vorinu.

Lífið