Lífið

Komu saman og fögnuðu vináttunni

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar í samkvæmi félaganna Arnars Grant og Ívars Guðmundssonar á Höfðatorgi á fimmtudaginn var. Tilefnið var svokölluð vináttuherferð Hámarks próteindrykkjarins en þeir buðu nokkrum bestuvinapörum landsins þar sem þeir fögnuðu góðum vinskap og bræðralagi.

Vinapör eins og fjölmiðlamennirnir Sveppi, Egill og Auddi, Hraðfréttastrákarnir Benedikt og Fannar, Magni og Hreimur, kokkarnir Jón Arnar og Rúnar kokkar, veitingamennirnir Simmi og Jói og auglýsingagerðamennirnir Sammi og Gunni.
Markmiðið með vinaherferðinni er að sögn Arnars og Ívars að sýna fram á hversu mikilvægt það er að eiga góða vini í lífinu.
Hraðfréttatvíeykið sá um veislustjórn.
Félagarnir Hreimur og Magni skemmtu með lifandi tónlist.
Egill Einarsson, Auðunn Blöndal og Sveppi.
Ívar og Arnar eru góðir vinir og viðskiptafélagar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×