Skoðun

Fréttamynd

Velkomnir í hópinn HR-ingar

Í Fréttablaðinu laugardaginn 9. júní ritaði Davíð Þór Björgvinsson, prófessor og dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, grein í tilefni af fyrstu útskrift lögfræðinga frá Háskólanum í Reykjavík. Ástæða er til að samfagna Davíð Þór og öðrum kennurum við skólann með þann merka áfanga - og ekki síst þeim stúdentum sem luku lagaprófi þetta sinn.

Skoðun
Fréttamynd

Búlgaría og Rúmenía

Þegar ríkistjórnin tilkynnti að því yrði frestað til ársins 2009 að heimila íbúum Búlgaríu og Rúmeníu að koma til landsins og vinna eins og aðrir íbúar Evrópusambandsins og EES-svæðisins, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, ráðherra velferðamála, í Blaðinu: „Við erum að nýta okkar þetta frestunarákvæði, en þeir hafa heimild til að koma hingað í gegnum þjónustusamninga og starfsmannaleigur.“

Skoðun
Fréttamynd

Árangur Íslenska dansflokksins

Í gagnrýni um dansleikhússamkeppni Íslenska dansflokksins og Leikfélags Reykjavíkur í Fréttablaðinu í gær, eyðir Páll Baldvin Baldvinsson, drjúgu plássi í að fjalla um árangur í starfi Íslenska dansflokksins. Þar setur hann fram nokkrar fullyrðingar sem ástæða er til að svara. „Dansleikhússamkeppnin hefur enda engu skilað: verkin eru ekki endurflutt," skrifar Páll.

Skoðun
Fréttamynd

Laugarvatnshátíð 9. júní

Samtök, sem kalla mætti Vini Laugarvatns, hafa undirbúið hátíð á Laugarvatni 9. júní nk. Markmiðið er að vekja áhuga og skilning almennings og ráðamanna á viðhaldi blómlegrar byggðar á skólasetrinu Laugarvatni.

Skoðun
Fréttamynd

Gluggað í stjórnarsáttmála

Það er vissulega sögulegt eins og segir í nýjum stjórnarsáttmála að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafi tekið ákvörðun um að starfa saman í ríkisstjórn. Svo mörg stór orð hafa fallið af hálfu beggja aðila um þá fjarstæðu að slíkt gæti gerst. Reyndar hafði dregið mjög úr slíkum stóryrðum nokkru áður en gengið var að kjörborðinu sem gefur vísbendingar um að línur hafi verið lagðar um samstarf fyrir kosningar.

Skoðun
Fréttamynd

Lífeyrissjóðsmál aldraðra

Velferðarmálin og þar á meðal málefni aldraðra koma í hlut Samfylkingarinnar í hinni nýju ríkisstjórn. Þessi mál eru nú færð undir félagsmálaráðuneytið. Hér á árum áður heyrðu almannatryggingarnar undir félagsmálaráðuneytið og þá lagði Alþýðuflokkurinn alltaf áherslu á að fá það ráðuneyti. Hér hefur málum því verið skip- að á sama hátt og þá gerðist. Það er vel. Jóhanna Sigurðardóttir er félagsmálaráðherra í nýju stjórninni. Ég treysti henni vel fyrir þessum málum.

Skoðun
Fréttamynd

Til hamingju með nýju nágrannana

„Okkur er sönn ánægja að tilkynna að nýir nágrannar fjölskyldunnar þinnar verði 10 heimilislausir karlmenn. Ef þú hefur einhverjar spurningar máttu hringja.“ Bréfið frá Reykjavíkurborg, var stutt, hnitmiðað og eitthvað á þessa leið.

Skoðun
Fréttamynd

Hjörleifi Guttormssyni svarað

Föstudaginn 13/4 birtist grein í Fréttablaðinu eftir hinn vígamóða Hjörleif Guttormsson þar sem hann fer þess á leit við Ómar Ragnarsson og Íslandshreyfinguna - lifandi land að þau hætti við margboðað framboð sitt til Alþingis. Hjörleifur er vel þekktur fyrir baráttu sína gegn álverum og virkjanaæðinu sem nú geisar sem aldrei fyrr og hefur vissulega verið drjúgur í þeirri baráttu. En grein hans er því miður ekki uppbyggilegt innlegg.

Skoðun
Fréttamynd

Dagur vatnsins

Í tilefni dagsins er gagnlegt að beina kastljósinu að þessari dýrmætu auðlind, ferskvatninu, Við komumst ekki af án þess, en gleymum gjarnan mikilvægi þess. Kannski vegna þess hversu forsjónin hefur verið örlát við okkur Íslendinga í þessum efnum.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað hefur maðurinn að fela?

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, sendi frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla á dögunum og mótmælti þeirri staðhæfingu Ingibjargar S. Pálmadóttur, er fram kom við vitnaleiðslur í Héraðsdómi Reykjavíkur, að hann hefði verið undir þrýstingi margra manna að liðsinna Jóni Gerald Sullenberger í aðdraganda Baugsmálsins.

Skoðun
Fréttamynd

Auglýst eftir efnislegu inntaki!

Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar frá 2003 um að sett verði stjórnarskrárákvæði um „sameign íslensku þjóðarinnar að fiskveiðiauðlindinni“ hefur komið til umræðu síðustu daga. Hugmyndina má raunar rekja til laga um fiskveiðistjórn allt frá 1988, en einkum var það álit auðlindanefndar árið 2000 sem gaf henni byr undir báða vængi.

Skoðun
Fréttamynd

Ljós í myrkrinu

Nýlega undirritaðir samningar við sauðfjárbændur vekja hjá mér stöðugt meiri undrun. Hvers vegna í ósköpunum er þetta látið yfir okkur ganga, að halda uppi hópi atvinnurekenda? Hvað er að þingmönnum? Og hvað er að fólkinu í landinu sem lætur sífellt valta yfir sig með sköttum til að hygla að útvöldum?

Skoðun
Fréttamynd

Óli H. Þórðarson hættir störfum

Fjölmiðlar greina frá því að Óli H. Þórðarson hafi látið af störfum sem formaður Umferðarráðs. Við það verða tímamót í umferðarmálum landsmanna. Þegar framkvæmdanefnd hægri umferðar lauk störfum árið 1969 ákvað dómsmálaráðherra, Jóhann Hafstein, að fræðslu- og upplýsingastarfi því sem nefndin hafði beitt sér fyrir, og gefið hafði góða raun, skyldi haldið áfram. Ákvað ráðherrann þá að stofna Umferðarráð.

Skoðun
Fréttamynd

Davíð svarað

Á baksíðu Fréttablaðsins hinn 18. febrúar fer Davíð Þór mikinn, þar fer hann með rakalausan þvætting um Frjálslynda flokkinn: „Sá flokkur sem erfiðast er að tengja frjálslyndi í einhverri óbrjálaðri merkingu orðsins kallar sig Frjálslynda. Þar virðast allir velkomnir sem hrekjast úr öðrum flokkum vegna óvinsælda.“

Skoðun
Fréttamynd

Umhverfisvottun

Flestum er orðið nokkuð ljóst að umhverfismál eru dauðans alvara og varða ekki aðeins velferð fugla og annarra villtra dýra heldur einnig mannkynið. Við erum farin að fá sífellt fleiri alvarlegar aðvaranir úr náttúrunni vegna athafna okkar, s.s. vegna hnattrænnar hlýnunar, efnamengunar þrávirkra efna, eyðimerkurmyndunar og útrýmingar tegunda.

Skoðun
Fréttamynd

Að velja siglingaleiðir

Af fréttaflutningi síðustu daga hefur mátt álykta að við val á siglingaleiðum skipa fyrir suðvesturhorn landsins sé aðeins til einn sannleikur, í formi skýrslu Det Norske Veritas frá því í maí 1999.

Skoðun
Fréttamynd

Ólundin í Þórunni

Í Fréttablaðinu hér á laugardaginn var ágætisúttekt af tilefni 90 ára afmælis Framsóknarflokksins. Nokkrir voru fengnir til þess að segja nokkur orð um flokkinn á þessum tímamótum, þar á meðal sá sem þetta ritar

Skoðun
Fréttamynd

Framlög til LÍN hækkuð

Nú á dögunum voru samþykkt fjárlög fyrir árið 2007 frá Alþingi. Miðað við fjárlög 2006 voru framlög til LÍN hækkuð um 767 m.kr. Framalög úr ríkissjóði til LÍN verða samtals 5.244 m.kr. og hafa aldrei áður verið hærri eða hækkað jafn mikið milli ára.

Skoðun
Fréttamynd

Lausnarorðið er frelsi

Margir halda að þeir sem berjast fyrir minnkandi ríkisafskiptum og lægri sköttum séu að bjóða upp á einhverjar „lausnir“. Þetta er misskilningur sem er þveröfugur við hitt sem rétt er. Frjálshyggjumenn boða engar lausnir. Þeir vilja bara samfélag þar sem þeir sem hafa lausnirnar fá frelsi til að prófa þær. Slík er ekki raunin þegar stjórnmálamenn, með sköttum og lögum, neyða alla til að samþykkja sínar lausnir.

Skoðun
Fréttamynd

Fatlaðir úti í kuldanum!

Hvers vegna er verið að láta pólitík bitna á fötluðum börnum? Er það kannski til þess að Björn Ingi Hrafnsson og félagar í borgarstjórn Reykjavíkur geti sagt í sjónvarpi og blöðum að ástandið sé betra núna en oft áður á frístundaheimilum borgarinnar. Það sem hann minntist ekki á er að fötluðum börnum á biðlista eftir plássi hefur verið vísað aftast í röðina.

Skoðun
Fréttamynd

Jólahugleiðing

Óttist ekki, yður er í dag frelsari fæddur,“ sögðu englarnir við fjárhirðana á Betlehemsvöllum. Veslings fjárhirðarnir voru miður sín af hræðslu, yfir öllum þeim undrum sem voru að gerast í kringum þá, á þeirra vinnustað sem allt hafði farið fram í sátt.

Skoðun
Fréttamynd

Ekkert persónulegt

Borgarfulltrúinn Dagur B. Eggertsson hefur farið mikinn vegna tímabundins verkefnis sem ég hef verið ráðinn til hjá Faxaflóahöfnum. Í þeirri orrahríð hefur hann ítrekað tekið fram að það sé ekkert persónulegt gagnvart mér.

Skoðun
Fréttamynd

Skattlagning ellilífeyris

Þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, núverandi borgarstjóri í Reykjavík, var í kosningabáttunni lofaði hann því margoft að ef hann kæmist að þá skyldu málefni eldri borgara vera í algjörum forgangi. Ég er eldri borgari og satt að segja leist mér ekki á svona kosningaloforð úr þessari áttinni, enda reyndist ótti minn réttur. Nú þegar er búið að hækka dvalarkostnað minn um 10.000 kr. og mig munar um það.

Skoðun
Fréttamynd

Velferðin fyrir borð borin

Ég er búin að vera sjóðandi reið lengi, lengi og fylltist áðan enn á ný réttlátri reiði. Ég veit ekki hvað í ósköpunum ég er að gera hér á þessu guðsvolaða landi, þar sem velferð almennings er sífellt fyrir borð borin.

Skoðun
Fréttamynd

Fyrirtæki sem ríkisborgari?

Ef litið væri á fyrirtæki sem ríkisborgara gætum við heimfært þá samfélagsábyrgð, sem við teljum einstaklinga hafa yfir á fyrirtæki, og þannig vænst þess að það taki sömu siðferðislegu, félagslegu og umhverfislegu ábyrgð og skyldur sem krafist er af öllum eða flestum þjóðfélagsþegnum.

Skoðun
Fréttamynd

Stóriðjuskólinn í Straumsvík

Í Fréttablaðinu þann 15. nóvember sl. var grein eftir Auði Þórhallsdóttur, leiðtoga fræðslumála hjá Alcan á Íslandi, um Stóriðjuskólann í Straumsvík. Greinin væri að mínum dómi ágæt ef í henni væri ekki meinlegt ranghermi sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Ég veit ekki hvaðan Auður Þórhallsdóttir hefur upplýsingarnar, en hef grun um að þær séu frá æðstu stjórn fyrirtækisins. Hvaðan sem þær koma þá eru þær uppspuni sem þarf að leiðrétta.

Skoðun
Fréttamynd

Framlög til LÍN skorin niður

Nú á dögunum voru samþykkt fjárlög fyrir árið 2007 frá Alþingi. Þegar málið kom til þriðju og síðustu umræðu í Alþingi kom fram breytingartillaga frá fulltrúum stjórnvalda um að skera niður áður áætlað framlag til Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) um 139 milljónir.

Skoðun
Fréttamynd

Tilgangur jólanna

Hver er tilgangur jólanna? Nú styttist í jólin og fólk fer á stjá, flestir í þeim eina tilgangi að eyða eins miklum peningum í jólagjafir og þeir mögulega geta, gefa allt það stærsta og flottasta sem völ er á. Með hverju árinu sem að líður keppast fyrirtækin við það að bjóða alltaf aðeins meiri, betri og dýrari vöru.

Skoðun
Fréttamynd

Raunveruleikasjónvarp reddar íslenskum landbúnaði

Öllum á óvart hefur það gerst í sænsku sjónvarpi að „raunveruleikaþáttur“ um tilhugalíf bænda hefur slegið öll vinsældamet. Þátturinn heitir „Bonde söker fru“ eða bóndi í konuleit og fjallar um fjóra einhleypa bændur sem fá til sín fjórar kátar kerlingar hver og fylgjast sjónvarpsáhorfendur spenntir með þegar þær eru leiddar undir bændurna eins og kýr til kelfingar.

Skoðun
Fréttamynd

Snobblykt

Dr. Hannes Hómsteinn skrifaði athyglisverða grein um léttvín í búðum þann 8 desember. Doktorinn vill eins og margir að léttvín verði selt í búðum og þar er ég einn af þessum mörgu sem sjá ekkert af slíkum gjörningi. En Doktorinn og fleiri fylgismenn áfengis segja að léttvín og bjór séu ekki eins skaðleg og sterkt vín. Doktorinn gengur jafnvel svo langt að segja að áfengisböl hljótist ekki af neyslu bjórs eða léttvíns heldur sterkra drykkja.

Skoðun