Héðan og þaðan

Fréttamynd

Enska lánið

Nokkuð virðist til í því að sagan snúi alltaf aftur. Árið 1921 sigldi þjóðarskútan inn í þvílíkan brimskafl í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar að gríðarlegur hallarekstur blasti við í ríkisbúskapnum og þrot fyrir bönkunum, Landsbanka og þáverandi Íslandsbanka. Brugðið var á ýmis ráð, svo sem innflutningshöft á óþarfa glysvarning.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Heilræði Schraders eiga sérstakt erindi nú

Þýskættaður Bandaríkjamaður að nafni George H. F. Schrader eyddi hér síðustu þremur árum ævi sinnar áður en hann fyrirfór sér árið 1915, aðeins 57 ára gamall. Schrader bjó á Akureyri og sinnti margvíslegu menningar- og uppbyggingarstarfi. Hann skrifaði bók um hesta og aðra þar sem hann deildi fróðleik sínum úr heimi viðskiptanna í Bandaríkjunum. Sú bók heitir „Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum“ og er nýkomin út í þriðju útgáfu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hafa reynst sannspáir um verðbólgu

Tímaritið Vísbending er tuttugu og fimm ára um þessar mundir. Af þessu tilefni ræddi Magnús Sveinn Helgason við Benedikt Jóhannesson, forstjóra útgáfufélagsins Heims og ritstjóra Vísbendingar, um sögu blaðsins og efnistök.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dýrustu ár landsins

Ekkert lát hefur verið á sölu veiðileyfa þrátt fyrir slæm tíðindi úr efnahagslífinu undanfarið. Veiðileyfissalar segja ástæðuna fyrir því vera að flest veiðileyfin voru seld á síðasta ári áður en að fór að kreppa að.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bíddu í eina mínútu

Veðurvaktin ehf. er ráðgjafafyrirtæki í eigu Einars Svein­björnssonar veðurfræðings. Þeir Finnur Jóhannsson, kvikmyndagerðarmaður og framleiðandi hjá Truenorth, og Aðalsteinn Snorrason, arkitekt hjá Arkís, segja ráðgjöfina sem þar er hægt að fá mikið þarfaþing.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ævintýraleg ávöxtun hlutabréfa

Íslenski hlutabréfmarkaðurinn stendur á tímamótum. Þrátt fyrir að úrvals- vísitalan hafi lækkað um helming á einu ári hefur ávöxtun hvergi verið eins góð og hér á síðustu tuttugu árum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

RÚV ekki einsdæmi

Andsvör Þorsteins Þorsteinssonar, markaðsstjóra RÚV, vegna ásakana Sigríðar Margrétar og Péturs um ósanngjarna samkeppnisstöðu:

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fersk blóm nauðsynleg

Fastakúnni Dans á rósum kaupir mikið af blómum fyrir sjálfa sig. Framkvæmdastjóri Flugleiðahótela segir ekkert alvöru hótel geta verið án ferskra blóma.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Danir baula á konur á barneignaraldri

Mörg fyrirtæki ráða fremur aðra umsækjendur en konur á barneignaraldri. Þetta kemur fram í Börsen en þar er sagt frá rannsókn sem greiningarstöðin Zapera gerði með því að taka viðtöl við 252 starfsmannastjóra í dönskum fyrirtækjum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Ósanngjörn staða á auglýsingamarkaði

Harðnandi samkeppni fjölmiðla virðist yfirvofandi á auglýsingamarkaði. Fækkun útgáfudaga og samrunar fjölmiðlafyrirtækja eru talin líkleg á næstu mánuðum. Forsvarsmenn Skjás eins og 365 miðla segja stöðu RÚV á auglýsingamarkaði ósanngjarna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Framtíð á bláþræði

Mikil ólga hefur umleikið danska fríblaðið Nyhedsavisen að undanförnu. Áður óþekkt skuldabréf í eigu Stoða Invest upp á 4 milljarða íslenskra króna setti strik í reikninginn við endurfjármögnun blaðsins sem nú stendur yfir. Skuldabréfið fékk Stoðir Invest fyrir að færa meirihlutaeign í félaginu bak við Ny­heds­avisen til Morten Lund.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hljóp 530 km í maí

„Ég hljóp 530 kílómetra í maí, sem er met hjá mér, Ég reikna með að hlaupa 400 kílómetra á mánuði fram að Mont Blanc-hlaupinu í lok ágúst,“ segir Börkur Árnason, sjóðsstjóri hjá Íslenskum verðbréfum á Akureyri. Hann býr sig nú undir þátttöku í einu stærsta og erfiðasta fjallahlaupi í Evrópu, en hann tók einnig þátt í því í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útivist og gönguferðir

„Mývatnssveitin er í uppáhaldi,“ segir Lilja Pálsdóttir, útibússtjóri í Glitni í Þarabakka, en hún er mikil ferðakona þegar kemur að því að ferðast um landið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leika leikinn á enda

Almennur áhugi á bókum um viðskipti fer vaxandi. Nýverið kom út bók um fjárfestingaraðferðir Warrens Buffett, Eymundsson stofnaði viðskiptabókaklúbb og viðskiptabókabúð var opnuð á dögunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Forðast kastljós fjölmiðlanna

„Hann var svo áhugasamur að komast áfram í heimi verðbréfaviðskipta að hann hafði engan tíma til að útskrifast,“ varð einum viðmælenda Markaðarins að orði um Magnús Jónsson, forstjóra Atorku Group.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hlaup, dans og skrif

„Þegar kemur að frístundum er af mörgu að taka en fyrst verð ég að nefna hlaupin. Ég byrjaði fyrst að hlaupa þegar ég var í námi í London árið 2005. Nú á ég eitt heilt og nokkur hálf maraþon að baki. Stefnan er tekin á að bæta tímann í hálfu maraþoni nú í haust í Bretlandi,“ segir Þóra Helgadóttir hagfræðingur, sem nú starfar hjá Singer og Friedlander í Lundúnum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Breytingar hjá Yggdrasil

Fjárfestingarsjóðurinn Arev N1 hefur keypt helmingshlut í fyrirtækinu Yggdrasil og er fyrirtækið þar með alfarið í eigu Arev N1. Í kjölfar breytinga á eignarhaldi hefur Dina Akhmetzhanova verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tími hagræðingar runninn upp

„Fólk er að spyrja meira um sparneytnari bíla nú en áður,“ segir Dagur Jónasson, framkvæmdastjóri Bílalands. Bílaland er sameinað fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á notuðum bílum frá Ingvari Helgasyni og B&L. Fyrirtækið tekur til starfa á morgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nálgast sársaukamörk Kauphallar?

Útlit er fyrir allnokkra fækkun félaga í Kauphöll Íslands. FL Group, Flaga, Vinnslustöðin, Icelandic Group, Skipti og Tryggingamiðstöðin bíða öll afskráningar. Gangi svo eftir samruni Kaupþings og SPRON fækkar um eitt til.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Með ólæknandi flugdellu

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, hefur frá unga aldri haft mikinn flugáhuga. Upp á síðkastið hefur hann meðal annars flogið utan með starfsfólk sitt, aðallega til að sinna viðskiptaerindum Saga Capital.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Afþreying á vinnustað

Magnús Ragnarsson hjá Latabæ, Jón Hörðdal hjá CCP og Sigurjón Þórðarson hjá Capacent eru sammála um að hægt sé auka starfsánægjuna á vinnustaðnum með skipulagðri afþreyingarstarfsemi.

Viðskipti innlent