Spænski boltinn

Fréttamynd

Morientes færist nær Liverpool

Samkvæmt Sky sjónvarpsstöðinni gæti Fernando Morientes loksins verði á leið til Liverpool fyrir 7 milljónir punda, en í þeim pakka yrði líka markvörðurinn Cesar.

Sport
Fréttamynd

Zidane tryggði Real sigur

Zinedine Zidane tryggði Real Madrid sigur í sex mínútna leiknum fræga með marki úr vítaspyrnu á síðustu mínútunni. Eins og frægt er var leik hætt á 84. mínútu þann 12. desember síðastliðinn eftir að sprengjuhótun var tilkynnt á Santiago Bernabeu.

Sport
Fréttamynd

Sex mínútna einvígi

Glænýr þjálfari Real Madrid, Brasilíumaðurinn Vanderlei Luxemburgo, fær einkennilegt fyrsta verkefni sitt á morgun þegar Real tekur á móti Real Sociedad í leik sem aðeins mun standa yfir í sex til sjö mínútur.

Sport
Fréttamynd

Luxemburgo hefur síðasta orðið

<font face="Helv">  Hinn nýi þjálfari Real Madrid, Wanderley Luxemburgo, spilar stóran þátt í framtíð Fernando Morientes hjá liðinu. </font>

Sport
Fréttamynd

Luxemburgo tekur við Real Madrid

Fyrrum stjóri Brasilíska landsliðsins í knattspyrnu, Wanderley Luxemburgo, hefur tekið við stjórn spænska stórliðsins Real Madrid. Luxemburgo tekur við af Mariano Garcia Remon sem tók við tímabundið eftir að Jose Antonio Camacho hætti fyrr í vetur.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo bjartsýnn

Spænskir fjölmiðlar skýra frá því að Ronaldo hafi ennþá trú á að Real Madrid geti unnið deild og Meistaradeild þrátt fyrir dapran árangur hingað til.

Sport
Fréttamynd

Raul að fara frá Real Madrid?

Æ fleira bendir til að miklar breytingar séu framundan hjá stórliði Real Madrid á komandi misserum og er orðið ljóst að nýr stjóri knattspyrnumála hjá liðinu, Ítalinn Arrigo Sacchi, mun framkvæma algera vorhreingerningu innan herbúða liðsins áður en ný leiktíð hefst í haust.

Sport
Fréttamynd

Fleiri ensk lið vilja Morientes

Fernando Morientes, framherji Real Madrid, er nú eftirsóttur af enskum úrvalsdeildarliðum. Liverpool og Newcastle hafa þegar borið víurnar í kappann og falast eftir kröftum hans en umboðsmaður Morientes hefur nú gefið út að tvö önnur félög í ensku úrvalsdeildinni hafi bæst í hópinn. Hann vill hins vegar ekki gefa upp hvaða lið það eru.

Sport
Fréttamynd

Real úti á þekju gegn Sevilla

Stórlið Real Madrid kórónaði eitt versta tímabil sitt um langa hríð í fyrrakvöld þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Sevilla 0-1. Var leikur liðsins svo dapur að annars sauðtryggir aðdáendur liðsina bauluðu og hrópuðu á leikmenn þess nánast allan síðari hálfleikinn.

Sport
Fréttamynd

Valencia í 2. sætið á Spáni

Sevilla vann heldur betur óvæntan útisigur á Real Madrid, 0-1 í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fyrr í kvöld fóru hins vegar fram 6 aðrir leikir og ber hæst 3-0 sigur Valencia á Espanyol sem fyrir umferðina var í 2. sæti, tólf stigum á eftir toppliði Barcelona sem er með 42 stig. Real Madrid er í 5. sæti með 29 stig.

Sport
Fréttamynd

Barcelona með tólf stiga forystu

Barcelona sigraði Levante 2-1 í spænsku 1. deildinni í gærkvöld og náði tólf stiga forystu á granna sína í Espanol. Barcelona tók forystuna á 28. mínútu þegar Deco skaut í varnarmann og þaðan fór boltinn í netið. Mateu Jofre jafnaði metin hálftíma fyrir leikslok en þegar fjórar mínútur voru eftir skoraði Samuel Eto´o sigurmark Barcelona.

Sport
Fréttamynd

Ronaldhino fer ekki til Chelsea

Ronaldhino, nýkrýndur knattspyrnumaður árins 2004, segist hafa engin áform um að segja skilið við Barcelona til að ganga til liðs við Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Beckham á bekkinn

David Beckham var settur á bekkinn hjá Real Madrid þegar liðið mætti Racing Santander á laugardaginn.

Sport
Fréttamynd

Betri en helmingur Chelsea-liðsins

Kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto´o hefur ekki mikla trú á því að brasilíski snillingurinn Ronaldinho gangi til liðs við Chelsea á næstunni og hlær af tilraunum enska stórliðsins til að tryggja sér kappann. "Hann er betri en helmingur liðs þeirra til samans," segir Eto´o.

Sport
Fréttamynd

Loksins sigur hjá Inter Milan

Roma valtaði yfir Parma 5-1 í ítölsku Serie A deildinni í knattspyrnu í dag þegar 8 leikir fóru fram. Francesco Totti og Antonio Cassano skoruðu tvö mörk hvor og Vincenzo Montella eitt fyrir Parma. Inter Milan tókst loks að innbyrða sigur eftir 12 jafntefli í 15 leikjum í vetur og unnu Brescia 1-0.

Sport
Fréttamynd

Tókst ekki að saxa á forskotið

Espanyol mistókst að saxa á forskot Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag þegar liðið gerði aðeins markalaust jafntefli við botnlið Numancia en endurheimti þó 2. sæti deildarinnar með stiginu. Barcelona gerði 1-1 jafntefli við Valencia í gærkvöldi og því hefði Espanyol getað minnkað bilið í 7 stig með sigri.

Sport
Fréttamynd

Morientes vill fara til Liverpool

Fernando Morientes hefur látið hafa eftir sér að hann sé meira en tilbúinn til að ganga til liðs við Liverpool í janúar, en framherjinn hefur lítið fengið að spreyta sig hjá stjörnuprýddu liði Real Madrid þar sem hann er á eftir Raul, Ronaldo og Michael Owen í goggunarröðinni.

Sport
Fréttamynd

Gronkjær til Madrid

Vængmaður Birmingham, Daninn Jesper Gronkjær, hefur samið við Spænska félagið Atletico Madrid um að ganga til liðs við þá þegar leikmannaglugginn opnar aftur í janúar.

Sport
Fréttamynd

Sprengjuhótun á leik Real Madrid

Sprengjuhótun leiddi til þess að knattspyrnuleikvangur Real Madrid var rýmdur í skyndingu í gær á áttugustu og áttundu mínútu leiks Real Madrid og Real Sociedad. Hótun, sem sögð var frá aðskilnaðarsamtökun herskárra Baska, ETA, barst dagblaði sem lét vita hvar og hvenær hún ætti að springa.

Sport
Fréttamynd

Barca enn á siglingu

Barcelona heldur sigurgöngu sinni áfram í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið lagði Albacete að velli á útivelli 2-1 í gærkvöldi. Xavi skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Asier Del Horno skoraði sigurmark Athletic Bilbao í 1-0 sigri á Atletico Madrid í gær. Barcelona hefur nú tólf stiga forystu í deildinni eru með 38 stig.

Sport
Fréttamynd

Simeone á leið frá Atletico?

Samkvæmt spænskum blöðum ætlar Diego Simeone að segja skilið við Atletico Madrid og ganga til liðs við Racing Club í Buenos Aires í heimalandi sínu, Argentínu.

Sport
Fréttamynd

Fyrir neðan allar hellur

Stórtap Deportivo á miðvikudaginn í Meistaradeildinni á heimavelli fyrir Mónakó kórónaði hörmulegt gengi liðsins í þeirri útvöldu deild en félagið lauk keppni ótrúlegt nokk með aðeins tvö stig og skoraði ekki eitt einasta mark.

Sport
Fréttamynd

Totti og Cassano til Real

Greint er frá því í spænskum fjölmiðlum að góðar líkur séu á því að tvær helstu stjörnur liðs Roma frá Ítalíu, Antonio Cassano og Francesco Totti, gangi til liðs við Real Madrid strax og leikmannamarkaðurinn opnar eftir í byrjun janúar

Sport
Fréttamynd

Jafntefli hjá Real Madrid

Real Madrid tókst aðeins að brúa bilið á Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Real gerði markalaust jafntefli gegn Villareal á útivelli. Barelona er með níu stiga forystu. Liðið er með 35 stig eftir 14 umferðir. Real madrid og Espanyol eru með 26 stig. Espanyol vann góðan 1-0 útisigur á Real Zaragoza.

Sport
Fréttamynd

Barcelona með tíu stiga forystu

Barcelona náði í gærkvöldi tíu stiga forystu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu eftir 4-0 sigur á Malaga. Kamerúninn Samuel Eto´o skoraði tvö markanna og þeir Deco og Anders Iniesta hin mörkin. Valencia vann Albacete 1-0 og Real Sociedad sigraði Real Betis 1-0.

Sport
Fréttamynd

Aðgerðin tókst vel

Framherji Barcelona, hinn sænski Henrik Larsson, gekkst undir aðgerð í Bandaríkjunum í dag, og samkvæmt talsmanni félagsins gekk aðgerðin vonum framar. Henke verður þó frá út tímabilið, en hann meiddist upphaflega í 3-0 sigurleiknum gegn Real Madrid, 20. nóvember síðastliðinn. Þessi fyrrum leikmaður Celtic er harðákveðinn í að spila aftur á næsta tímabili og hefur Barcelona þegar framlengt samning hans við félagið.

Sport
Fréttamynd

Risaleikur í spænska boltanum

Mestu erkifjendur knattspyrnusögunnar, Barcelona og Real Madrid, eigast við á Camp Nou, heimavelli Barcelona, í kvöld. Barcelona er í efsta sæti spænsku deildarinnar og Madrídingar eru í öðru sæti, fjórum stigum á eftir. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst upphitun klukkan 20.20 og leikurinn fjörutíu mínútum síðar.

Sport
Fréttamynd

Jóhannes Karl laus frá Betis

Landsliðsmaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er laus allra mála frá spænska liðinu Real Betis. Hann hefur átt í viðræðum við félagið um starfslok og í dag var tilkynnt að samningi hans við félagið hefði verið rift með gagnkvæmum vilja og að hann gæti farið hvert sem hann vildi á frjálsri sölu.

Sport