Lífið

Sykurlaus páskaeggja geggjun

Guðrún Ansnes skrifar
Hafdís ásamt sonum sínum, Sigurgeiri Árna og Alexander Gauta, sem leiðist hreint ekki að fá að laumast í eins og einn sykurlausan mola við tækifæri.
Hafdís ásamt sonum sínum, Sigurgeiri Árna og Alexander Gauta, sem leiðist hreint ekki að fá að laumast í eins og einn sykurlausan mola við tækifæri. Vísir/Valli
„Ég er nú alls ekki heilög, en það er gott að fara gullna meðalveginn,“ segir Hafdís Priscilla Magnúsdóttir sem heldur úti bloggsíðunni Dísukökur.is og gerir hún sykurlausu hnossgæti hátt undir höfði í færslunum.

fullkomin Stærð eggjanna er afar hentug fyrir litla fingur eða einn munnbiti fyrir þá stærri. fréttablaðið/Hafdís
Páskar eru á næsta leiti og því ekki úr vegi að benda lesendum Fréttablaðsins á páskaegg sem henta bókstaflega öllum. „Þessi eru sniðug fyrir yngstu kynslóðina sem ekki er farin að borða sykur og stærðin hentar vel í litlar hendur,“ segir Hafdís og bætir við að eggin henti býsna mörgum: 

„Þessi egg eru líka mjólkurlaus og laus við allar dýraafurðir svo þeir sem aðhyllast vegan-lífsstíl geta fengið sér bita.“ 

Góð fita gulli betri

Eggin eru jafnframt stútfull af góðri fitu og það skilar sér meðal annars í að færri bita er þörf en ella.

„Sykurlausu uppskriftirnar falla vel í kramið hjá mínum börnum. Ég hef stundum íhugað að fela þetta fyrir þeim svo ég fái meira,“ segir Hafdís og skellir upp úr.

Eggin eru geymd í frysti og þau verða einkar girnileg þegar þau þiðna.fréttablaðið/Hafdís
Góðu páskaeggin

½ bolli kakósmjör, smátt skorið

½ bolli kókosolía, bragðlaus

40 g ósykrað kakó

30 g Sukrin Melis

10 dropar súkkulaði-stevía

Aðferðin er einföld:

Kakósmjör og kókosolía sett í pott og brætt á lágum hita. Hrærið reglulega í.

Þurrefnum og stevíu blandað við og sett í pottinn. Hrærið vel en það getur tekið smá stund að fá sætuna og kakóið til að bráðna.

Setjið súkkulaðið í páskaeggjaformið ykkar, ef þið ætlið að fylla, setjið 1/3 af súkkulaði í formið og frystið.

Setjið svo þá fyllingu sem ykkur langar í og lokið með því að setja súkkulaði yfir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×