Súkkulaðikransatoppar

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Það er auðvelt að baka súkkulaðikransatoppana.
Það er auðvelt að baka súkkulaðikransatoppana.

400 gr marsípanmassi
100 gr flórsykur
2 eggjahvítur
3 msk kakó
100 gr dökkur Opal súkkuhjúpur


Hrærið marsípan, flórsykur og kakó saman, bætið eggjahvítu út í og blandið vel.

Mótið kökurnar með sprautupoka og notið störnumynstur.

Bakið við 220 gráður í 8-10 mín. Kælið kökurnar.

Dýfið toppunum í bræddan hjúpinn.


Súkkulaðismákökur.



Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Súkkulaðikransatoppar