Erlent

Stukku fram af hæsta mannvirki heims

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Base-jump garparnir Fred Rugen og Vince Reffet settu heimsmet í base-jump fallhlífarstökki þegar þeir stukku fram af hinum ógnarháa Burj Khalifa-turni í Dúbæ á dögunum.

Skýjakljúfurinn er 830 metra hár, sem gerir hann að hæsta mannvirki heims, en myndatökumaður fylgdi félögunum eftir í háloftunum.

Stökkið ógurlega má sjá í myndbandinu hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×