Lífið

Stórbrotin penthouse íbúð við Laugaveg til sölu inni í Stjörnubíó

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kjöreign fasteignasala er með glæsilega penthouse íbúð á söluskrá við Laugaveg en á sama reit var áður Stjörnubíó sem margir muna kannski eftir.

Eignin er um 150 fermetrar og er íbúðin á tveimur hæðum ásamt tuttugu fermetra suðursvölum.

Um er að ræða virkilega smekklega íbúð í hjarta borgarinnar en hún var öll tekinn rækilega í nefið á árunum 2002-2006. Hljóðdempun og hljóðeinangrun eru mjög góð í íbúðinni þar sem hún var áður B-salur Stjörnubíós.

Kaupverðið er 74,9 milljónir króna en fasteignamatið er 44,4 milljónir. Hér að neðan má sjá myndir innan úr íbúðinni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×