Erlent

Stöðvuðu ferð barna til Ísrael

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Stuðningsmenn Hamas
Stuðningsmenn Hamas vísir/ap
Hamas-liðar stöðvuðu í gær rútu fulla af palestínskum ungmennum á leið til Ísrael. Heimsóknin var skipulögð af þarlendum friðarsamtökum.

Ástæðan fyrir aðgerðum Hamas, sem voru tekin af hryðjuverkalista ESB fyrir skemmstu, var sú að einn staðanna sem heimsækja átti er hluti af landtökusvæði Ísraela.

Rúmlega 2.100 manns, nær allt Palestínumenn, létust í átökum milli þjóðanna síðsumars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×