Handbolti

Stjörnur Barcelona spá í leik Fram og Gróttu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður Barcelona, sló á létta strengi á Snapchat-aðgangi Strákanna okkar, landsliðsmanna Íslands í handbolta, í gær.

Barcelona mætir Kiel í Meistaradeild Evrópu síðar í dag en Guðjón Valur fékk liðsfélaga sína til að spá í spilin fyrir leik Fram og Gróttu í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í dag.

Sjá einnig: Í beinni: Fram - Grótta

Guðjón Valur viðurkenndi fúslega sem uppalinn Seltirningur að hann heldur með Gróttu og virtist hafa fengið flesta samherja sína á hans band.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×