Enski boltinn

Steven Gerrard æfði með Liverpool í dag | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steven Gerrard talar við Jürgen Klopp á æfingunni.
Steven Gerrard talar við Jürgen Klopp á æfingunni. Vísir/Getty
Steven Gerrard var með á æfingu Liverpool í dag en hann endaði sautján ára feril hjá félaginu síðasta vor og fór að spila með bandaríska liðinu LA Galaxy.

Tímabilið er nú búið hjá LA Galaxy og bryjar ekki aftur fyrr en næsta vor. Gerrard snéri "heim" til Liverpool og fékk leyfi hjá knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp að fá að æfa með liðinu.

Í fyrstu fór af stað umræða um það hvort Gerrard myndi spila með Liverpool á þessu tímabili en þýski knattspyrnustjórinn lokaði strax á það.

Gerrard sá Liverpool vinna Swansea City á Anfield í gær og mætti svo á æfingu liðsins á Melwood-æfingasvæðinu í dag.

Það var ekkert Los Angeles veður sem tók á móti Steven Gerrard á æfingunni enda blautt og kalt í Liverpool í dag.

Ljósmyndarar Getty voru að sjálfsögðu á svæðinu og náðu nokkrum skemmtilegum myndum af Steven Gerrard á æfingunni eins og sjá má hér fyrir neðan.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×