Golf

Stenson leiðir óvænt fyrir lokahringinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Henrik stillir upp fyrir pútt á flöt í dag.
Henrik stillir upp fyrir pútt á flöt í dag. Vísir/Getty
Sænski kylfingurinn Henrik Stenson náði forskotinu rétt fyrir lok þriðja hrings og leiðir fyrir lokahringinn á Opna breska meistaramótinu í golfi en hann er með eins högga forskot á Phil Mickelson.

Mickelson leiddi fyrir þriðja hringinn hring en hann fór hægt af stað með einn fugl á fyrstu níu á meðan Stenson sem deildi ráshóp með honum byrjaði af krafti.

Stenson fékk þrjá fugla á fyrstu fjórum holunum en fylgdi því eftir með tveimur skollum á 6. og 8. braut vallarins og voru þeir því jafnir að níu holum loknum.

Mickelson náði aldrei flugi á seinni níu holunum en hann fékk tvo skolla og tvo fugla. Á sama tíma fékk Stenson tvo fugla og var skollalaus og náði með því forskotinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Stenson leiðir að þremur hringjum loknum á stórmóti í golfi en það verður fróðlegt að fylgjast með rimmu þeirra á lokahringnum á morgun.

Stenson hefur aldrei borið sigur úr býtum á einu af stóru fjóru mótunum í golfi en hann getur sömuleiðis orðið fyrsti Svíinn sem sigrar Opna breska meistaramótið.

Bill Haas kemur næstur á sex höggum undir pari en hann átti högg dagsins þegar hann setti vipp beint í holuna úr glompunni á 8. holu vallarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×