Handbolti

Stelpurnar töpuðu öðrum leiknum í Sviss

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stelpurnar á góðri stundu út í Sviss.
Stelpurnar á góðri stundu út í Sviss. Mynd/Instagram-síða stelpnanna okkar
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði með fjögurra marka mun í öðrum æfingaleik sínum við Sviss í dag.

Svissneska liðið vann leikinn 25-21 eftir að hafa unnið seinni hálfleikinn með átta mark mun. Ísland hafði fjögurra marka forystu í hálfleik, 16-12, en svissneska liðið náði forystu um miðjan síðari hálfleik og hélt henni allt til loka.

Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst í liði Íslands í dag með 8 mörk, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Ramune Pekarskyte skoruðu 4 mörk hvor og Arna Sif Pálsdóttir skoraði 2 mörk.

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Ásta Birna Gunnarsdóttir og Unnur Ómarsdóttir skoruðu sitt markið hver.

Þriðji og síðasti leikur Íslendinga og Svisslendinga í þessari lotu fer fram í Zofingen á morgun og hefst klukkan 17 að íslenskum tíma.

Æfingaferðin til Sviss er liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir leikina gegn Svartfjallalandi í undankeppni HM, en þeir leikir fara fram í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×