Golf

Stærstu golfmót heims áfram á Golfstöðinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rory McIlroy verður áfram fastagestur á Golfstöðinni. Hægra megin er Ágúst Héðinsson, forstöðumaður íþróttasviðs hjá 365, og Thierry Pascal hjá PGA-mótaröðinni.
Rory McIlroy verður áfram fastagestur á Golfstöðinni. Hægra megin er Ágúst Héðinsson, forstöðumaður íþróttasviðs hjá 365, og Thierry Pascal hjá PGA-mótaröðinni. Samsett mynd/Vísir/Getty
Golfstöðin hefur áfram tryggt sér sýningarrétt á öllu helsta golfefni í heiminum og mun því áfram gera stærstu golfmótum heims góð skil næstu þrjú árin.

Á árinu sem er að líða hefur Golfstöðin stóraukið útsendingar frá golfi kvenna og mun bæta um betur á komandi árum.

Golfstöðin hefur verið með PGA-mótaröðina, Evrópumótaröðina og öll stærstu mót heims til sýningar hjá sér á hverju ári. Enn meira golf verður sýnt en áður á komandi árum og bætt í umfjöllun í tengslum við stærstu mótin og viðburðina hverju sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×