Menning

Stærsta samsýning ársins opnar í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Næstu vikur munu um 80 nemendur Listaháskóla Íslands fylla sali Hafnarhússins með verkum sínum en þar opnar í dag útskriftarsýning LHÍ.

Verk nemanna sem verða þar til sýnis endurspegla nám, rannsóknir og listsköpun þeirra í skólanum síðastliðin þrjú ár.

Mestur fjöldi útskrifast frá myndlistardeild, eða 32 nemendur. Þá ljúka 17 námi í grafískri hönnun, 15 í arkitektúr, 9 í fatahönnun og 7 í vöruhönnun.

Sýningin sem teygir sig um ganga og sali Hafnarhússins hefur að þessu sinni yfirskriftina „Ytri höfnin“ sem vísar til samnefndrar ljóðabókar Braga Ólafssonar frá árinu 1993.

„Ytri höfn er óræður staður úti fyrir landi þar sem skip kasta akkerum tímabundið á ferðalagi sínu um heiminn. Nemendur yfirtaka Hafnarhúsið með svipuðum hætti, staldra þar við í tvær vikur og halda síðan hvert í sína áttina til frekari landvinninga,“ segir í tilkynningu frá skólanum.

Sýningin hefst sem fyrr segir í dag, klukkan 14, og stendur hún yfir til 8. maí næstkomandi. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×