Erlent

Sprengdu sigurbogann í Palmyra

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Vígamenn Íslamska ríkisins hafa sprengt tvö hof í Palmyra auk sigurbogans.
Vígamenn Íslamska ríkisins hafa sprengt tvö hof í Palmyra auk sigurbogans. Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins í norðurhluta Sýrlands hafa sprengt upp sigurbogann í  Palmyra , sem byggður var fyrir tvö þúsund árum síðan. Vígamenn samtakanna hafa áður sprengt tvo forn hof í borginni, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.

Yfirmaður fornleifastofnunar Sýrlands, 
Maamoun   Abdul   Karim , segir að borgin sé dæmd til eyðileggingar í höndum vígamanna Íslamska ríkisins, en hann staðfestir að sigurboginn hafi verið sprengdur.


Tengdar fréttir

Liðsmenn ISIS komnir inn í Palmyra

Palmyra er að finna á heimsminjaskrá UNESCO og er óttast að ISIS-liðar muni vinna skemmdir á eða eyðileggja borgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×