Golf

Spieth vill fá meiddan Rory á opna breska

Tómas Þór Þóraðrson skrifar
Rory McIlroy mætir kannski ekki til að veita Jordan Spieth samkeppni.
Rory McIlroy mætir kannski ekki til að veita Jordan Spieth samkeppni. vísir/getty
Bandaríski kylfingurinn Jordan Spieth segir það muni deyfa opna breska meisaramótið í golfi verði Rory McIlrroy ekki með.

Norður-Írinn greindi frá því á Instagram-síðu sinni í gær að hann hefði slitið liðband í ökkla þegar hann var að sprikla með félögum sínum í fótbolta um helgina.

Óvíst er hvort Rory geti mætt á St. Andrews til að verja titilinn, en Jordan Spieth er búinn að vinna fyrstu tvö risamót ársins og stefnir vitaskuld að alslemmunni.

„Auðvitað vonast ég til að hann verði með. Maður vill að öll mót sé full af bestu kylfingum heims,“ segir Spieth í viðtali við Golf Channel.

„Maður vill að ríkjandi meistari mæti til að verja titilinn, ég tala nú ekki um ef hann er jafnframt besti kylfingur heims.“

„Það er erfitt fyrir hvaða risamót sem er að missa besta kylfing heims. Það deyfir mótið aðeins,“ segir Jordan Spieth.

Þessi 21 árs gamli Texasbúi vann The Masters og opna bandaríska meistaramótið fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×