Viðskipti innlent

Sparifélagið tilbúið í rekstur banka og býður í sparisjóði

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ingólfur Ingólfsson
Ingólfur Ingólfsson
„Félagið er fullfjármagnað og nú er komið að því að framkvæma; að stofna nýjan banka,“ segir Ingólfur Ingólfsson, fjármálaráðgjafi og einn aðstandenda Sparifélagsins, sem falast eftir 22,4 prósenta hlut Fjarðabyggðar í Sparisjóði Norðfjarðar.



Ingólfur segir Sparifélagið hafa leitað leiða frá því fyrir hrun að stofna viðskiptabanka undir nafninu Sparibankinn. Einn möguleikinn sé að kaupa sig inn í sparisjóði.

Aðspurður segir Ingólfur Sparifélagið ekki einblína á Sparisjóð Norðfjarðar. „Ríkið á stóran hluta í mörgum sparisjóðum. Þær eignir eru væntanlega til sölu á einhverjum tímapunkti. Við erum opin fyrir að kaupa einn sparisjóð, meirihluta í sparisjóði, þá alla eða eignarhlut ríkisins í þeim öllum,“ segir hann.

Ingólfur segir bæði innlenda og erlenda einstaklinga og lögaðila koma að fjármögnun félagsins. „Á meðan hlutirnir eru ekki komnir mikið lengra en þetta get ég ekki sagt mikið meira,“ segir hann um það.

„Markmiðið er að skapa samkeppni á þessum markaði sem sárlega vantar. Þá viljum við líka kynna nýja hugmynd að viðskiptabanka. Það kemur vonandi skemmtilega á óvart,“ segir Ingólfur um áformin.

Ríkið á 49,5 prósent í Sparisjóði Norðfjarðar, Fjarðabyggð 22,4 prósent og einstaklingar og félög afganginn. Í ágúst 2011 ákvað stjórn sparisjóðsins að selja sjóðinn. Viðunandi tilboð bárust ekki og hætt var við söluna. Jón Einar Marteinsson segir sjóðinn standa traustum fótum. Hagnaður ársins 2012 var 19,2 milljónir króna og eigið fé í árslok 598 milljónir.

Engar áætlanir hafa verið uppi hjá Fjarðabyggð að undanförnu um að selja hlutinn í sparisjóðnum. Bæjarráðið fól Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra að ræða við Sparifélagið. Páll vill ekkert segja um málið að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×