Handbolti

Snorri Steinn í sigurliði í franska stjörnuleiknum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Snorri Steinn í leik með íslenska landsliðinu.
Snorri Steinn í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Stefán
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark í stjörnuleik franska handboltans í gær, en þar mættust tvö stjörnuprýdd lið. Leikið var fyrir framan rúmlega ellefu þúsund manns í Montpellier.

Valin voru tvö lið úr franska boltanum; úrvalslið heimamanna og úrvalslið erlendra leikmanna. Snorri Steinn og félagar í erlenda liðinu unnu eins marks sigur 41-40 í skemmtilegum leik.

Mathieu Grebille, samherji Róberts Gunnarssonar hjá PSG, var markahæstur hjá Frökkunum með níu mörk, en Miha Zvizej, leikmaður Toulouse, var markahæstur í liði Snorra Steins og félaga með sjö mörk. Eins og fyrr segir skoraði Snorri Steinn eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×