Smákökur sem nefnast Köllur

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Karen Ţórsteinsdóttir sendi jólavefnum uppskriftina sem lofar góđu.
Karen Ţórsteinsdóttir sendi jólavefnum uppskriftina sem lofar góđu.

Þessar kökur líkjast Sörum, en heita Köllur, að sögn Karenar Þórsteinsdóttur sem sendi jólavefnum uppskriftina.

Innihald:

400 gr marsipan
100 gr flórsykur
100 gr sykur
100 gr kókósmjöl
5 stífþeyttar eggjahvítur
grænt pístasíu marsipan
dökkt gott hjúpsúkkulaði

Aðferð:

Eggjahvítur eru stífþeyttar með sykrinum, marsipan rifið útí og kókósmjölinu bætt við.

Sett með teskeið á bökunarplötuna (hafa bökunarpappír undir ). Bakað í 7 mín við 200°C. Kökurnar kældar, síðan er grænu pístasíu marsipani sprautað á botninn og honum dýft í dökkt súkkulaði.

Sendu okkur uppáhalds kökuuppskriftina þína á netfangið jol@jol.is.


Fleiri fréttir - Jólavefur

Ţú ert hér: Forsíđa / Jólavefur / Smákökur sem nefnast Köllur