Innlent

Skúli Alexandersson látinn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Skúli Alexandersson
Skúli Alexandersson mynd/vefur alþingis
Skúli Alexandersson, fyrrverandi alþingismaður, lést á Landspítalanum í Reykjavík síðastliðinn laugardag af völdum hjartaáfalls. Hann var 88 ára að aldri.

Skúli var fæddur í Kjós, inn af Djúpuvík í Reykjarfirði á Ströndum, 9. sept. 1926. Foreldrar hans voru Alexander Árnason, bóndi þar, og kona hans, Sveinsína Ágústsdóttir húsfreyja. Hann lauk héraðsskólaprófi í Reykjanesi árið 1942, prófi frá Samvinnuskólanum árið 1950 og námi í framhaldsdeild Samvinnuskólans 1951. Var Skúli síðan veturinn eftir verslunarmaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki en féllst þá á fyrir bænastað vinar síns að koma á Hellissand og vinna þar tímabundið í Kaupfélaginu. Varð það upphaf að meira en 60 ára búsetu hans á Hellissandi, eða allt til þess að hann fluttist á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrr á þessu ári. Við Kaupfélagið á Sandi starfaði Skúli til ársins 1955, rak útgerð frá 1954–1969 og var framkvæmdastjóri Jökuls hf. á Hellissandi frá árinu 1961, allt þar til því félagi var slitið um þremur áratugum síðar.

Skúli Alexandersson varð þegar á ungum aldri róttækur í skoðunum og skipaði sér í sveit með sósíalistum og síðar Alþýðubandalaginu. Hann var oddviti Neshrepps utan Ennis 1954–1966, 1970–1974 og 1978–1981. Skúli var skipaður í stjórn landshafnar í Rifi, flugráð og stjórn Sementsverksmiðjunnar, svo fátt eitt sé talið af opinberum störfum hans. Þá kom hann enn fremur að undirbúningi að stofnun þjóðgarðs undir Jökli.

Skúli Alexandersson varð varaþingmaður Alþýðubandalagsins í Vesturlandskjördæmi við kosningarnar 1971 og sat alloft á þingi sem slíkur, allt þar til hann var kosinn alþingismaður í vetrarkosningunum 1979. Sat hann þá samfellt til ársins 1991; sat á 19 löggjafarþingum alls. Í þingstörfum kom Skúli víða við en mest sinnti hann málefnum sjávarútvegs og samgöngumálum. Hafði hann mikla þekkingu á sjávarútvegi, enda sprottinn úr þannig jarðvegi og útgerð og vinnsla helsta viðfangsefni hans á Hellissandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×