Viðskipti innlent

Skuldarar kalla eftir aðstoð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fólkið hitti fulltrúa ríkisstjórnarinnar í morgun.
Fólkið hitti fulltrúa ríkisstjórnarinnar í morgun.
„Við undirrituð, sem tókum lán hjá SPRON og Frjálsa fjárfestingabankanum, sættum okkur ekki við að vera undir oki slitastjórnarinnar Dróma, sem sett var á fót við fall þessara banka," segja lántakendur í ákalli til ríkisstjórnarinnar og alþingismanna sem þeim var afhent í morgun. „Samviskuleysi og óbilgirni gagnvart lántakendum þessara fjármálafyrirtækja hefur ítrekað orðið tilefni til umfjöllunar í fjölmiðlum og er flestum kunn," segja þeir enn fremur.

Lántakendurnir heita á alþingismenn og ráðherra að sjá til þess að lánasöfnin verði færð til bankastofnana með hagsmuni af eðlilegum viðskiptum til frambúðar, líkt og gert var við útlán SpKef og Byrs á sínum tíma.

Skora líka á Arion banka

Þá hefur sami hópur lántakenda skorað á Arion banka að sýna jafnræði gagnvart fyrrum viðskiptavinum SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans. Þeir benda á að Arion banki hafi tekið við innistæðum þeirra, launareikningum og greiðslukortaviðskiptum eftir gjaldþrot SPRON, en skilið lánin eftir í þrotabúinu sem Drómi hf hefur yfirráð yfir.

„Drómi er alræmt eignarhaldsfélag án starfsleyfis sem fjármálastofnun. Fjölmargir lántakendur hafa kvartað undan Dróma og Umboðsmaður skuldara staðfest ýmsar brotalamir í viðskiptaháttum þeirra og siðferði. Þar sem að Arion banki er stærsti kröfuhafinn í þrotabú SPRON ætti að vera hægt um vik að losa fyrrum viðskiptavini SPRON og FFb undna því oki að eiga við slitastjórn Dróma. Arion banki verður að sýna það í verki að hann standi með viðskiptavinjum sínum til þess að vera traustsins verður," segja lántakendurnir í áskorun sinni til Arion.

Jóhanna vill grípa til aðgerða

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur rétt að grípa til aðgerða gegn Dróma vegna kvartana viðskiptavina og vill skoða hvort ástæða sé til að flytja eignasafn félagsins til Seðlabankans eða Arionbanka. Engu að síður birti Fjármálaeftirlitið í fyrradag gagnsæistilkynningu vegna athugunar á starfsháttum Dróma hf. Þar koma engar alvarlegar aðfinnslur fram varðandi starfsemi Dróma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×