Innlent

Skrítið að meirihluti skikki suma í verkfall

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Formaður BHM bendir á að ríkið geri bara athugasemd við hluta boðaðra verkfalla hjá aðildarfélögum BHM í næstu viku. Til dæmis sé löglega boðað til aðgerða geislafræðinga og fleiri hópa.
Formaður BHM bendir á að ríkið geri bara athugasemd við hluta boðaðra verkfalla hjá aðildarfélögum BHM í næstu viku. Til dæmis sé löglega boðað til aðgerða geislafræðinga og fleiri hópa. Fréttablaðið/Pjetur
Félagsdómur tekur fyrir á morgun mál sem ríkið hefur höfðað vegna verkfallsboðunar nokkurra aðildarfélaga Bandalags háskólamanna (BHM).

Páll Halldórsson, formaður BHM, segir ríkið kynna greinargerð sína vegna málarekstursins í dag og þá skýrist kannski staðan. Þau séu hins vegar öðru vísi vaxin en mál Starfsgreinasambandsins þar sem verkfallskosningar voru dæmdar ólögmætar í Félagsdómi fyrir helgi.

„Við hefðum talið nær að leysa deiluna en standa í einhverjum lagaþrætum,“ segir Páll, en ríkið gerir athugasemdir við verkfallskosningu í félögum BHM þar sem bara hluti félagsmanna fer í verkfall.

Páll Halldórsson
Páll segir deiluna standa um hvort í slíkum tilvikum eigi allir félagsmenn að greiða atkvæði, líkt og ríkið uppástandi, eða bara þeir sem verkfallið nær til, líkt og sé afstaða BHM. 

„Og ég reyndar sé ekki skynsemina í því að einhver meirihluti félags geti skikkað minnihluta í verkfall,“ segir Páll.

Málsókn ríkisins segir Páll snúa að náttúrufræðingum, matvæla- og næringarfræðingum, lögfræðingum, ljósmæðrum, leikstjórum og háskólamenntuðum starfsmönnum Stjórnarráðsins.

Varðandi það hvort sú ákvörðun ríkisins að vísa þessum málum til Félagsdóms setji deiluna í hnút þá segir Páll sitt fólk nú reyna að halda jafnvægi sínu. „Við snúum okkur bara að því að finna lausnir. En það er alveg ljóst að þetta hjálpar ekki til í deilunni.“ 

Þá segir Páll að næsti fundur í deilum félaga BHM við ríkið sé á morgun, en hefur ekki mjög miklar væntingar til niðurstöðu á þeim fundi. 

„Einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að ríkinu liggi ekkert á og sé þá frekar í málaferlum og einhverjum slíkum leikjum.“ 

BHM geri hins vegar ráð fyrir að verkföll hefjist í næstu viku. Falli mál með ríkinu í Félagsdómi þá gerist ekki annað en verkfallsaðgerðir þeirra félaga tefjist aðeins. Aðgerðir hinna standi.

Fyrir liggur hins vegar að verkfallsaðgerðir félaga Starfsgreinasambandsins tefjast um tvær til þrjár vikur, en til stóð að þau verkföll hæfust 10. apríl næstkomandi. 

Samtök atvinnulífsins segja á vef sínum að niðurstaða Félagsdóms í þeim málum hafi ekki átt að koma á óvart því árið 2011 hafi komið dómur um að sameiginleg atkvæðagreiðsla stéttarfélaga um verkfallsaðgerðir sé andstæð lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. 

Sjálfstæða atkvæðagreiðslu þurfi hjá hverju félagi fyrir sig um boðun verkfalls. 

„Það kom því á óvart að SGS færi af stað með sameiginlega atkvæðagreiðslu sem vitað var frá upphafi að ekki stæðist lög.“


Tengdar fréttir

Námslánin eru að sliga háskólamenn

Þriðjungur félagsmanna BHM skuldar fimm milljónir eða meira í námslán. Verkföll eftir páska verði ekki samið. Segja endurgreiðslu námslána rýra kaupmátt.

Sársaukafull aðgerð en óumflýjanleg

Af um 180 starfsmönnum Vísis hf., á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi eru tíu atvinnulausir eftir að starfsemin var flutt til Grindavíkur fyrir réttu ári. Pétur H. Pálsson segir að tækniþróun og ytri aðstæður hafa gert aðgerðina óumflýjanlega.

AFL efnir til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun

AFL Starfsgreinafélag hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar hjá fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar hjá ALCOA Fjarðaáli við framleiðslu, viðhald og þjónustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×