Erlent

Skotárás í bandarískum skóla

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Árásarmaðurinn særði að minnsta kosti tvo og svipti sig svo lífi.
Árásarmaðurinn særði að minnsta kosti tvo og svipti sig svo lífi. mynd/afp
Að minnsta kosti tveir særðust í árás byssumanns í Arapahoe-framhaldsskólanum í bænum Centennial í Colorado í dag.

Árásarmaðurinn svipti sig lífi eftir árásina og hefur að minnsta kosti einn nemendanna verið fluttur á slysadeild vegna skotsára. Að sögn CNN er ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli hinna særðu eru.

Öllum skólum í nágrenninu hefur verið lokað og lögregla hefur sett upp vegatálma við skólann.

Skólinn er um 15 kílómetrum frá Columbine-skólanum þar sem tveir nemendur myrtu 13 manns árið 1999.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×