Skoða viðurlög við barngervingu í klámi Erla Hlynsdóttir skrifar 4. október 2010 14:44 Klámefni þar sem fullorðnir einstaklingar eru barngerðir er ekki flokkað sem barnaklám. Það kann að breytast.
Refsiréttarnefnd hefur verið falið að skoða mögulegar breytingar á lögum um bann við vörslu og dreifingu á barnaklámi. Í því felst meðal annars að athuga hvort og þá hvernig unnt væri að heimfæra undir refsiákvæðið tilvik þar sem fullorðinn einstaklingur er barngerður í kynferðislegum tilgangi en slík lagaákvæði er meðal annars að finna í norsku hegningarlögunum. Sala og dreifing kláms er ólögleg á Íslandi en harðari viðurlög eru við dreifingu barnakláms. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur falið refsiréttarnefnd að útbúa frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum svo að hægt sé að fullgilda samning Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun á börnum. Þá er nefndin beðin að taka til sérstakrar skoðunar hvort ástæða sé til að endurskoða refsiramma almennra hegningarlaga er snúa að kynferðisbrotum gegn börnum en samkvæmt núgildandi ákvæðum gætir nokkurs misræmis að því er varðar þær refsingar sem við þessum brotum liggja. Þannig liggur þyngri refsing við nauðgun en sambærilegu broti gegn barni. Ráðuneytið hefur einnig óskað eftir umsögn refsiréttarnefndar um það hvort ástæða sé til að endurskoða refsirammann í mansalsmálum. Athygli ráðuneytisins hefur verið vakin á því að hugsanlega þurfi að yfirfara ákvæðið, m.a. vegna þess að mismunur er á refsingu fyrir mansal annars vegar og nauðgun eða frelsissviptingu hins vegar, en slík brot eru oft liður í mansalsbroti. Þá virðist refsirammi ákvæðisins geta gert rannsókn lögreglu í slíkum málum erfiðari en ella en sum rannsóknarúrræði laga um meðferð sakamála miða við að refsing fyrir tiltekið brot sé að minnsta kosti 10 ára fangelsisvist.
Tengdar fréttir Stúdentar mótmæla svæsnu klámi Hópur háskólanemenda sem berst gegn klámvæðingu hefur hengt upp veggspjöld víða um Reykjavík þar sem vakin er athygli á því að klámefni með vísunum í barnaklám er fáanlegt í kynlífsverslunun í borginni. „Á sumum hulstrum er tekið fram að leikkonurnar séu orðnar 18 ára, en það er augljóslega viljandi verið að leika sér á gráa svæðinu eins og við sýnum vel á veggspjöldunum okkar. Eitt myndbandið gerir meira að segja út á sifjaspell!," segir einn meðlimur hópsins í samtali við Student.is 17. september 2010 10:00 Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Erlent Hitamet slegið á Spáni um helgina Erlent Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Innlent Krefjast svara um mögulegar frekari árásir Erlent Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Innlent Fleiri fréttir Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sjá meira
Stúdentar mótmæla svæsnu klámi Hópur háskólanemenda sem berst gegn klámvæðingu hefur hengt upp veggspjöld víða um Reykjavík þar sem vakin er athygli á því að klámefni með vísunum í barnaklám er fáanlegt í kynlífsverslunun í borginni. „Á sumum hulstrum er tekið fram að leikkonurnar séu orðnar 18 ára, en það er augljóslega viljandi verið að leika sér á gráa svæðinu eins og við sýnum vel á veggspjöldunum okkar. Eitt myndbandið gerir meira að segja út á sifjaspell!," segir einn meðlimur hópsins í samtali við Student.is 17. september 2010 10:00