Golf

Skemmtileg vandræði Mickelson | Tringale og Scott á toppnum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Mickelson skemmti áhorfendum þrátt fyrir erfitt gengi
Mickelson skemmti áhorfendum þrátt fyrir erfitt gengi vísir/getty
Cameron Tringale og Adam Scott eru efstir eftir tvo hringi á fyrsta Fed Ex mótinu sem leikið er á Ridgewood golfvellinum. Engu að síður var það Phil Mickelson sem stal senunni.

Tringale lék á þremur undir pari í gær og er alls á átta undir pari líkt og Scott sem lék frábært golf í gær og lék á sex undir pari þrátt fyrir að hafa misst fjölmörg pútt á hringnum.

Efsti kylfingur heimslistans, Rory McIlroy lék einnig á sex undir pari í gær og er alls á þremur undir pari eftir erfiðan fyrsta hring.

Kylfingur dagsins var þó Phil Mickelson. Hann átti í bullandi vandræðum og rétt slapp í gegnum niðurskurðinn. Hann lék á einu höggi yfir pari eftir að hafa parað fyrsta hringinn.

Það voru einmitt vandræði Mickelson á fimmtu holu vallarins sem vöktu hvað mesta athygli. Fimmta holan er stutt par 4 hola. Mickelson ætlaði sér að slá inn á flötina í einu höggi en það gekk ekki betur en svo að hann sló upp í áhorfendastúku.

Sjón er sögu ríkari en höggin í og úr stúkunni má sjá í myndbandinu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×