Innlent

Skaðlegt að loka á hatursáróðurssíðu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Helgi Hrafn Gunnarsson segir í versta falli skaðlegt og í skásta falli gagnslaust að loka á hatursáróðurssíður.
Helgi Hrafn Gunnarsson segir í versta falli skaðlegt og í skásta falli gagnslaust að loka á hatursáróðurssíður. Fréttablaðið/vilhelm
„Að loka á þessa síðu er í skásta falli gagnslaust og í versta falli beinlínis skaðlegt,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingflokksformaður Pírata, um spjallborð sem Vísir fjallaði um á mánudag. Á spjallborðinu deila Íslendingar hatursfullum skoðunum en spjallborðið er hýst á bandarískri vefsíðu.

„Það er alltaf vandamál að ætla að stjórna efni á netinu. Ef þú ætlar að loka á efnið verður það að eltingaleik sem er ekki hægt að vinna nema með samstarfi lögregluyfirvalda. Samstarfið þarf að vera byggt á því að nota hefðbundnar rannsóknarheimildir. Þannig er til dæmis tekist á við barnaklám. Maður nær ekki í glæpamann með því að loka á vefsíður,“ segir Helgi.

Sjá einnig: Íslendingar deila hatursáróðri á spjallborði

„Þegar kemur að hatursáróðri er ekki ljóst við hvað er átt. Það er dæmigert vandamál. Ef um er að ræða tjáningu sem veldur réttmætum ótta ber að rannsaka það sem lögreglumál,“ bætir Helgi við.

Fredrick Brennan
Helgi segir tilgangslaust að loka á vefsíðu sem þessa þar sem sami hópur muni koma saman á annarri vefsíðu, eða sækja sömu vefsíðu með krókaleiðum, og ræða sömu mál. „Skoðanirnar verða áfram til án samfélagslegrar gagnrýni. Umræðan mun þá fara fram án þess að fólk sem er á móti þessum skoðunum tjái sig,“ segir Helgi.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við Fréttablaðið á mánudag þurfa að skoða hvort hægt sé að loka síðunni en ekki er víst hvort það er lagalega framkvæmanlegt.

„Ef fólk vill fara að loka svona vefsvæðum því þar finnst hatursáróður, hvar dregur maður línuna? Ætlar maður að banna biblíuvers þar sem fjöldamorð eru réttlætt, eða banna kóraninn? Ætlarðu að banna vefsíður þar sem fólk er raunverulega að takast á um dauðarefsingar eða hvort herveldi megi pynta fanga? Hvar ætlar fólk að setja mörkin milli þess sem því finnst óþægilegt og ógeðslegt og hins vegar mikilvægrar umræðu um erfiðustu mál samtímans? Erfiðustu mál samtímans verða alltaf ógeðsleg,“ segir Helgi.

Eigandi síðunnar sem hýsir spjallborðið, Fredrick Brennan, er tvítugur Bandaríkjamaður. „Rasismi er ekki ólöglegur í mínu landi, negri,“ skrifaði hann á Twitter-síðu sína um fréttina sem birtist á mánudag. 


Tengdar fréttir

Íslendingar deila hatursáróðri á spjallborði

Íslendingar skrifa nafnlaus ummæli á spjallborði hýstu á erlendri síðu. Hatursáróður gegn konum, hinsegin fólki, múslimum og fleiri hópum er áberandi á síðunni. Óljóst er hvort hægt sé að loka umræddri síðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×