Enski boltinn

Sjáðu markið sem Gylfi Þór skoraði á móti Man. City

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea eru úr leik í enska deildabikarnum eftir 2-1 tap gegn Manchester City á heimavelli í gærkvöldi.

Efsta lið ensku úrvalsdeildarinnar, Man. City, komst í 2-0 áður en Gylfi Þór skoraði með viðstöðulausu skoti í uppbótartíma eftir fyrirgjöf Gambíumannsins Moudo Barrow.

Gylfi fagnaði markinu lítið sem ekkert enda sigur Man. City nánast í höfn, en toppliðið fór áfram í 16 liða úrslitin og mætir þar Manchester United.

Þetta er annað mark Gylfa Þórs á tímabilinu en hann skoraði sitt fyrsta í vetur í 2-2 jafntefli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á dögunum.

Markið sem Gylfi Þór skoraði í gærkvöldi má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×