Tónlist

Sister Sledge leyniatriði Secret Solstice í ár

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Systurnar Sledge eins og þær líta út í dag. Þær stíga á svið Valhalla á fimmtudag.
Systurnar Sledge eins og þær líta út í dag. Þær stíga á svið Valhalla á fimmtudag. Vísir/Getty
Nýjasta og óvæntasta viðbót við dagskránna á Secret Solstice hátíðinni í ár er diskósveitin Sister Sledge. Systurnar Kim, Debbie og Joni Sledge hafa engu gleymt þrátt fyrir að þrír áratugar séu frá því að þær ruddust fyrst fram á sjónarssviðið með slagaranum og samnefndri breiðskífu „We are Family“. Það var enginn annar en Nile Rodgers úr Chic sem stýrði og útsetti þar.

Systurnar munu koma fram á Valhalla eða stóra sviði hátíðarinnar á fimmtudaginn kl. 21:10. Þær voru upphaflega fjórar í sveitinni en Kathy Sledge kemur sjaldan fram með systrum sínum enda á fullu sjálf í hljómsveitinni Aristofreeks.

Þær Kim, Debbie og Joni koma fram með vel mannaðri hljómsveit. Þetta verður í annað skiptið sem Sister Sledge heldur tónleika hér á landi en þær spiluðu á Broadway fyrir nokkrum árum síðan.

Hefð á Secret Solstice

Hefð er fyrir því að hátíðin tilkynni eitt nýtt „leyni“-atriði sömu viku og hátíðin á að hefjast. Eins og allir vita er dagskrá hátíðarinnar stútfull af hiphoppi, rokki og ýmis konar rafsveitum á borð við Radiohead, Die Antwoord, Deftones, M.O.P., Of Monsters and Men og Jamie Jones. Þar sem um hásumar hátíð er að ræða virðist hafa verið vöntun á alvöru diskó og hafa hátíðarhaldarar nú brugðist við því.

Það var Ívar Guðmundsson sem greindi fyrst frá þessu á Bylgjunni í morgun en hátíðarhaldarar hafa staðfest framkomu systranna. Klippuna úr þætti hans má heyra hér að ofan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×