Sir Alex enn á ofurlaunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. apríl 2017 16:30 Ferguson á spjalli við Gary Neville. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Manchester United, hefur það gott á efri árum og er enn að þéna háar upphæðir. Ferguson hætti sem knattspyrnustjóri United árið 2013 eftir 26 ár í starfi þar sem félagið vann nánast alla titla sem í boði voru margsinnis. Hann rekur sitt eigið fyrirtæki til að halda utan um starfssemi sína sem felst aðallega í því að koma opinberlega fram og flytja fyrirlestra. Fyrirtækið skilaði sex milljóna punda hagnaði í fyrra, jafnvirði rúmlega 800 milljóna króna. Hann fær til að mynda tvær milljónir punda í laun fyrir 20 daga starf sem sendiherra Manchester United og allt að 100 þúsund pund fyrir hvern fyrirlestur. Ferguson hefur áður sagt að hann hafi nóg að gera þrátt fyrir að hann sé ekki lengur knattspyrnustjóri. „Ég vinn mikið. Þetta er annars konar vinna. Ég er með sendiherrastöðu hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sinni þjálfaramenntun hjá Knattspyrnusambandi Evrópu og með stöðu hjá Harvard háskólanum. Þá er ég í stjórnunarstöðu hjá Manchester United. Það er því mikið að gera.“ Samkvæmt ársreikningi ACF Sports Promotion, fyrirtæki Ferguson, var eiginfjárstaða þess rúmar fimmtán milljónir punda, jafnvirði tveggja milljarða króna, um mitt ár í fyrra. Hagnaðurinn sem eftir stóð er svipuð upphæð og Ferguson var með í árslaun hjá Manchester United síðustu ár sín í starfi knattspyrnustjóra.
Enski boltinn Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Handbolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Fleiri fréttir Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Sjá meira