Erlent

Sigurvegari pulsuátkeppni hesthúsaði 62 pylsur í brauði

jón hákon halldórsson skrifar
Matt Stonie fékk verðlaun að keppni lokinni.
Matt Stonie fékk verðlaun að keppni lokinni. NordicPhotos/afp
Bandaríkin Hinn 23 ára gamli Matt Stonie afrekaði það að borða 62 pylsur í brauði í pylsuátkeppni sem fram fór í New York á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, þann 4. júlí. Stonie varð í öðru sæti í þessari sömu keppni í fyrra, en þá vann Joey Chestnut keppnina.

Chestnut varð núna í öðru sæti í keppninni og borðaði tveimur pylsum færri en Stonie.

Sá sem varð þriðji í röðinni borðaði hins vegar einungis 32 pylsur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×