Handbolti

Sigurmarkið á lokasekúndunni

Þórir Ólafsson.
Þórir Ólafsson. mynd/kielce
Þórir Ólafsson og félagar í Kielce urðu í kvöld pólskir bikarmeistarar í handbolta. Úrslitaleikurinn var dramatískur í meira lagi.

Kielce lagði þá Wisla Plock, 33-32, þar sem Michal Jurecki skoraði sigurmarkið á lokasekúndu leiksins.

Þetta er í ellefta skiptið sem Kielce vinnur bikarkeppnina og sjötta árið í röð.

Fögnuður Kielce í leikslok.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×