Sport

Sigríður og Ríkharður tekin inn í Heiðurshöll ÍSÍ

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigríður (í miðjunni) ásamt Líneyju Rut Halldórsdóttur, framkvæmdarstjóra ÍSÍ, og Lárusi Blöndal, forseta ÍSÍ.
Sigríður (í miðjunni) ásamt Líneyju Rut Halldórsdóttur, framkvæmdarstjóra ÍSÍ, og Lárusi Blöndal, forseta ÍSÍ. vísir/ernir
Sigríður Sigurðardóttir og Ríkharður Jónsson voru í kvöld tekin inn í Heiðurshöll ÍSÍ en þau voru heiðruð í Silfurbergi í Hörpu þar sem Íþróttamaður ársins 2015 var útnefndur.

Meðlimir í Heiðurshöllinni eru nú orðnir 13 talsins en hún var sett á stofn árið 2012 í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ.

Sigríður var kjörinn Íþróttamaður ársins 1964, fyrst kvenna, en hún er ein fremsta handboltakona sem Ísland hefur alið. Hún var m.a. fyrirliði íslenska landsliðsins sem varð Norðurlandameistari 1964.

Ríkharður er einn af fremstu fótboltamönnum Íslands fyrr og síðar en hann lék á sínum tíma 33 landsleiki og skoraði 17 mörk, en markamet hans stóð í fjöldamörg ár.

Meðlimir í Heiðurshöll ÍSÍ:

Vilhjálmur Einarsson

Bjarni Friðriksson

Vala Flosadóttir

Jóhannes Jósefsson

Sigurjón Pétursson

Albert Guðmundsson

Kristín Rós Hákonardóttir

Ásgeir Sigurvinsson

Pétur Guðmundsson

Gunnar A. Huseby

Torfi Bryngeirsson

Sigríður Sigurðardóttir

Ríkharður Jónsson

Ríkharður var sigursæll á sínum ferli, bæði sem leikmaður og þjálfari.vísir/ernir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×