Golf

Signý: Sonurinn nýi lukkugripurinn minn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Signý Arnórsdóttir og Þórður Rafn Gissurarson urðu bæði Íslandsmeistarar í höggleik í fyrsta sinn á ferlinum um helgina en mótið fór fram á Garðavelli á Akranesi.
Signý Arnórsdóttir og Þórður Rafn Gissurarson urðu bæði Íslandsmeistarar í höggleik í fyrsta sinn á ferlinum um helgina en mótið fór fram á Garðavelli á Akranesi. mynd/gsí
Það voru ný nöfn rituð á Íslandsmeistarabikarana í golfi í gær þegar Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Signý Arnórsdóttir úr Golfklúbbnum Keili stóðu uppi sem sigurvegarar á Íslandsmótinu í höggleik. Þórður Rafn hafði mikla yfirburði og vann að lokum með fimm högga forystu á Axel Bóasson, sem fyrr í sumar varð Íslandsmeistari í holukeppni.

Bæði höfðu þau blandað sér í baráttuna um titilinn undanfarin ár án árangurs og skein því í gegn sælutilfinning á andlitum þeirra þegar titillinn var í höfn. Þórður Rafn setti nýtt mótsmet á Íslandsmótinu en hann var með öruggt forskot allan lokahringinn á meðan Signý náði forskotinu á ný á sautjándu holu með góðu fuglapútti. Heimakonan Valdís Þóra Jónsdóttir varð að sætta sig við annað sætið á Garðavelli. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, meistari síðasta árs, varð þriðja.

Mynd/GSÍ
Mótsmetið fallið eftir 51 ár

Þórður Rafn var skiljanlega sáttur eftir mótið en ásamt því að setja nýtt mótsmet jafnaði hann vallarmetið deginum áður af hvítum teigum. Fyrra mótsmetið áttu þeir Magnús Guðmundsson frá 1964 og Birgir Leifur Hafþórsson árin 2013 og 2014 og féll því 51 árs gamalt met.

„Það var verið að hvísla því að mér undir lokin en ég vissi ekki að þetta væri svona gamalt. Met eru sett til þess að vera slegin og ég hlakka til að þetta verði slegið, hvort sem það verður einhver annar kylfingur eða ég,“ sagði Þórður sem var stoltur af því að taka metið af fyrirmynd sinni úr golfinu.

„Þegar ég var krakki og maður sá hann fékk maður einfaldlega stjörnur í augun en að vera kominn á sama stað og hann og keppa við hann sem jafningi er frábært og núna er ég á þessum bikar með honum.“



Mynd/GSÍ
Öðruvísi undirbúningur

Signý varð í fyrsta sinn Íslandsmeistari í höggleik en hún viðurkenndi að þetta hefði hana dreymt um í mörg ár.

„Þetta er ótrúlega góð tilfinning og eiginlega ólýsanleg. Það var frábært að klára þetta hérna og geta fagnað með fjölskyldu minni við síðustu flötina,“ sagði Signý sem var ánægð með spilamennskuna heilt yfir.

„Það er ekki hægt að vera annað en ánægð með spilamennskuna. Ég get auðvitað fundið eitt og eitt högg sem voru léleg en á sama tíma var ég heppin með nokkur högg. Ég reyndi bara að vera róleg og yfirveguð í dag og leika minn leik því það gera allir kylfingar mistök. “

Signý viðurkenndi að undirbúningurinn fyrir mótið hefði verið öðruvísi en oft áður en hún eignaðist lítinn strák í upphafi ársins.

„Þetta hefur auðvitað verið allt annað en vanalega. Ég æfði eiginlega ekkert af viti í vetur þegar ég var ófrísk. Eftir að hann fæddist í febrúar hef ég reynt að komast eins mikið og ég get en það er auðvitað takmarkað hvað maður getur hlaupið mikið frá,“ sagði Signý sem var ánægð með áhrif sonarins. „Hann er alveg klárlega lukkugripurinn minn,“ sagði Signý með bros á vör.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×