Golf

Signý: Á púttin inni á morgun

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Signý Arnórs
Signý Arnórs Mynd/Sigurður Elvar
„Það er alltaf markmiðið að vera í efsta sæti og ég er bara nokkuð sátt með að vera komin þangað,“ sagði Signý Arnórsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, eftir þriðja hringinn á Íslandsmótinu í höggleik í dag.

„Þetta var allt frekar gott í dag fyrir utan eitt högg hérna á átjándu. Það mættu fleiri pútt detta hjá mér en ég á það inni á morgun.“

Signý sem var fjórum höggum á eftir Sunnu Víðisdóttir í upphafi dags nýtti sér vel mistök Sunnu sem átti í miklum erfiðleikum í dag.

„Þær áttu erfitt uppdráttar í dag á sama tíma og ég var að spila nokkuð jafnt og stöðugt. Ég náði að nýta mér það með því að einblína bara á eigin spilamennsku en það er ekki hægt að segja að þetta gerist ekki fyrir mig á morgun. Ég fer inn í þetta með sama leikplan og vonast til þess að spila stöðugt golf.“

Signý hefur aldrei orðið Íslandsmeistari en handan við hornið bíða bæði Sunna og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem þekkja það að vinna Íslandsmeistaratitilinn.

„Þær hafa það fram yfir mig og ég á ekki von á öðru en að þetta verði spennandi á morgun. Það eru átján holur eftir og þetta er ekki búið fyrr en þú labbar út af síðustu flötinni. Það þýðir ekkert fyrir mig að byrja að hugsa um bikarinn, ég verð bara að spila mitt golf á morgun og næ vonandi að halda þessu áfram á morgun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×