Siggakökur - Gömul og góđ uppskrift frá 1947

Fréttablađiđ Jólavefur 11. desember 2011 11:00
Áslaug Lilja, amma Áslaug og Sigurjón Kári smakka á hinum ljúffengu smákökum sem kenndar eru viđ Sigga.
Áslaug Lilja, amma Áslaug og Sigurjón Kári smakka á hinum ljúffengu smákökum sem kenndar eru viđ Sigga. Fréttablađiđ/Stefán
Áslaug Þorgeirsdóttir matreiðslukennari hefur bakað Siggakökur fyrir jólin í fjöldamörg ár. Uppskriftin er úr Nýju matreiðslubókinni frá 1947 eftir Halldóru Eggertsdóttur og Sólveigu Benediktsdóttur. Þetta árið fékk Áslaug dygga hjálp frá barnabörnunum.

Siggakökurnar eru fastur liður í jólahaldi Áslaugar enda renna þær ljúflega niður. Hún bendir á að kökurnar breytist í prýðis súkkulaðibitakökur sé hnetunum sleppt og súkkulaðimagnið aukið.


Siggakökur

½ bolli (ca 110g) smjörlíki
6 msk. (ca 50 g) strásykur
6 msk. (ca 60 g) púðursykur
1 egg
11/8 bolli hveiti
½ tsk. natron
1/8 tsk. salt
Nokkrir dropar heitt vatn
½ bolli saxaðar hnetur eða möndlur.
½ bolli súkkulaðimolar (smátt skornir)
½ tsk. vanilla

Búið til hrært deig, blandið hnetunum, súkkulaðinu og vanillunni í síðast. Mótið með teskeið á plötu og bakið við 200 í 7-10 mín.

Fleiri fréttir - Jólavefur

Ţú ert hér: Forsíđa / Jólavefur / Siggakökur - Gömul og góđ uppskrift frá 1947