Lífið

Síðasti jólabasar í bili

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Aðstandendur Kunstschlager frá vinstri: Sigmann Þórðarson, Kristín Karólína Helgadóttir, Helga Páley Friðþjófsdóttir, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Þorgerður Þórhallsdóttir, Helgi Þórsson, Hrönn Gunnarsdóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir. Í myndina vantar Baldvin Einarsson. Þarna er líka kötturinn Pommes, sem er því miður ekki til sölu.

Í dag verður hinn árlegi jólabasar gallerísins Kunstschlager á Rauðarárstíg opnaður. Þetta er í þriðja skiptið sem basarinn er haldinn en verður því miður síðasti viðburðurinn í galleríinu þar sem Kunstschlager bætist í hóp þeirra sem hrökklast burt úr miðbænum vegna hækkandi húsaleigu.

„Það er gaman fyrir fólk að koma og kynnast þessu áður en það lokar,“ segir Helga Páley Friðþjófsdóttir, einn aðstandenda gallerísins. „Þetta er síðasti séns til að kíkja þarna inn á þessum stað,“ segir Helga og ítrekar að ábendingar séu vel þegnar varðandi mögulegt húsnæði fyrir framtíðina. „Við viljum halda áfram sem hópur á næsta ári og erum enn að leita að húsnæði,“ segir Helga.

Á Jólabasarnum í fyrra voru yfir 70 listamenn sem seldu verk. „Ég taldi ekki hvað þetta voru margir listamenn þegar við vorum að setja upp í fyrradag en ég er sjálf enn að taka við verkum. Það koma oft verk á síðustu stundu,“ segir Helga.

Að sögn Helgu hefur basarinn hjálpað starfseminni mikið í gegnum tíðina. „Þetta hefur verið okkar helsta tekjulind fyrir árið. Það er líka svo skemmtilegt að sjá hvað hér er fjölbreytt og mikið af verkum á basarnum. Þarna er öll flóran og mikið af fjölbreyttum listamönnum. Þetta er list á góðu verði og góð fjárfesting.“

Húsið verður opnað klukkan 18.00 í dag og verður jólaglögg í boði og heitt á könnunni. Fram að jólum verður opið aðra daga frá klukkan 16.00 til 20.00.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×