Enski boltinn

Sherwood nálgast Crystal Palace

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Samkvæmt heimildum Daily Mail er Tim Sherwood, fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, í viðræðum við Crystal Palace um að taka við liðinu.

Tony Pulis, fyrrum knattspyrnustjóri liðsins, sagði starfi sínu lausu fyrir helgi, deginum áður en Crystal Palace mætti Arsenal í fyrsta leik tímabilsins.

Breskir miðlar voru fljótir að bendla Sherwood og Malky Mackay, fyrrum knattspyrnustjóra Cardiff við starfið en flest bendir til þess að Sherwood taki við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×