Handbolti

Sex íslensk mörk í jafntefli Nimes og Créteil

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ásgeir Örn skoraði fimm mörk í kvöld.
Ásgeir Örn skoraði fimm mörk í kvöld. vísir/ernir
Nimes, lið þeirra Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar og Snorra Steins Guðjónssonar, gerði 30-30 jafntefli við Créteil á heimavelli í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Ásgeir skoraði fimm mörk úr 11 skotum en Snorri, sem hefur verið einn besti leikmaður frönsku deildarinnar til þessa, náði sér ekki á strik í kvöld og skoraði aðeins eitt mark úr níu skotum.

Nimes er með sjö stig í 5. sæti deildarinnar, einu minna en Saint Raphael sem vann góðan fjögurra marka sigur, 23-27, á Nantes á útivelli í kvöld.

Þetta var fjórði sigur Saint Raphael í fyrstu fimm leikjum tímabilsins en liðið er í 3. sæti deildarinnar með átta stig.

Arnór Atlason lék ekki með Saint Raphael í kvöld.


Tengdar fréttir

Snorri markahæstur í Frakklandi

Snorri Steinn Guðjónsson er markahæsti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fjórar umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×