Erlent

Sex finnast á lífi í hótelinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hótelið er afar illa farið.
Hótelið er afar illa farið. Vísir/EPA
Sex einstaklingar hafa fundist á lífi í rústum hótels nærri fjallinu Gran Sasso í Abruzzo-héraði á Ítalíu. Minnst fjórir eru látnir eftir að snjóflóð féll á hótelið á miðvikudaginn. BBC greinir frá.

Björgunaraðilar hafa leitað að hótelgestum og starfsmönnum hótelsins í rústunum frá því í gær. Ekkert lífsmark hafði fundist þar til nú. Eftir á þó að koma þeim sex sem nú hafa fundist úr rústunum.

Um tuttugu er enn saknað en minnst 27 voru í hótelinu þegar snjóflóðið varð.

Gríðarlegt fannfergi hefur verið á Ítalíu undanfarna daga en í fyrstu var einungis hægt að komast að slysstaðnum á skíðum eftir að vegir lokuðust. Stór hluti hótelsins er á kafi í snjó en svo virðist sem að hótelið hafi færst til um nærri tíu metra í flóðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×