Erlent

Sessions sestur á ráðherrastól

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Trump Bandaríkjaforseti ánægður með ráðherrann
Trump Bandaríkjaforseti ánægður með ráðherrann vísir/afp
Jeff Sessions tók í gær formlega við embætti dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, þrátt fyrir að hafa verið sakaður um kynþáttahyggju.

Sjálfur sagði hann þær ásakanir ekki eiga við rök að styðjast, heldur drægju gagnrýnendur hans upp skrípamynd af honum til að gagnrýna.

Andstæðingar jafnt sem stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta bíða enn niðurstöðu áfrýjunardómstóls um hið umdeilda bann hans við innflutningi fólks frá nokkrum múslima­löndum.

Trump sjálfur gagnrýndi harðlega dómarann í Seattle sem úrskurðaði innflytjendabannið ólöglegt, en meðal þeirra sem gagnrýnt hafa Trump fyrir þau ummæli er Neil M. Gorsuch, sem Trump vill gera að hæstaréttardómara.

Gorsuch sagði ummæli Trumps um dómarann vera niðurdrepandi og siðspillandi.

Áfrýjunardómstóllinn tók málið fyrir á þriðjudag og sagði von á niður­stöðu fljótlega, en jafnvel þótt sá úrskurður verði banninu í vil bíða tugir annarra dómsmála sem höfðuð hafa verið gegn banni Trumps.

Trump stærir sig á Twitter-reikningi sínum af því að 55 prósent kjósenda styðji innflytjendabannið, samkvæmt skoðanakönnun fréttavefsins Politico. Andstaðan mældist aðeins 38 prósent.

Í grein á Politico er reyndar bent á það að aðrar skoðanakannanir, frá CBS, CNN, Gallup og Quinnipiac, hafi sýnt fram á andstöðu meirihlutans við innflytjendabannið.

Trump vekur hins vegar einnig athygli á nýrri skoðanakönnun sem sýnir að meirihluti íbúa Evrópuríkja myndi styðja sams konar aðgerðir í Evrópu, sem fælu í sér að íbúum múslimaríkja yrði bannað að flytja til Evrópu.

Það er breska stofnunin Chatham House sem gerði þessa könnun. Íbúar tíu Evrópulanda voru spurðir hvort stöðva ætti allan innflutning fólks frá múslimalöndum.

Alls voru 55 prósent aðspurðra fylgjandi þessu. Tuttugu prósent voru ósammála en 25 prósent sögðust hvorki fylgjandi né andvíg slíku banni.

Stuðningur við slíkt bann reyndist mestur í Póllandi, þar sem hann mældist 71 prósent. Í Austurríki mældist 65 prósent stuðningur, 53 prósent í Þýskalandi og 51 prósent á Ítalíu. Minnstur var stuðningurinn á Spáni og í Bretlandi, 47 og 41 prósent, en hvergi mældist andstaðan við slíkt bann meiri en 32 prósent.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Þrír flokkar á Alþingi fordæma aðgerðir Trump

Fyrsti flutningsmaður tillögunnar segir brýnt að íslenska þjóðþingið láti strax í sér heyra vegna tilraunar forsetans til að banna þegnum sjö ríkja að koma til Bandaríkjanna.

Ráðgjafi Trump auglýsti fatalínu Ivönku í sjónvarpsviðtali

Kellyanne Conway, ráðgjafi Donald Trump Bandaríkjaforseta, notaði tækifærið í sjónvarpsviðtali við Fox News í dag og auglýsti fatalínu Ivönku Trump, dóttur forsetans, en verslunin Nordstrom tók línuna úr sölu á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×