Golf

Sergio Garcia fór á kostum á öðrum hring á Firestone

Sergio Garcia lék á alls oddi í kvöld.
Sergio Garcia lék á alls oddi í kvöld. AP/Getty
Sergio Garcia fór á kostum á öðrum hring á Bridgestone Invitational sem fram fer í Ohio en þegar að mótið er hálfnað hefur hann þriggja högga forystu á næstu menn. Garcia er samtals á 11 höggum undir pari en hann fékk átta fugla á síðustu níu holunum á Firestone vellinum í kvöld og lék hringinn samtals á 61 höggi.

Frammistaða Spánverjans var það góð að golfáhugamenn um víða veröld eiga ekki eftir að gleyma henni í langan tíma enda sjaldan sem nokkur kylfingur leikur níu holur á PGA-mótaröðinni á aðeins 27 höggum.

Í öðru sæti er Englendingurinn Justin Rose en hann er á átta höggum undir pari eftir hringina tvo. Marc Leishman og Rory McIlroy deila þriðja sætinu á sjö höggum undir pari en skor kylfinga hingað til hefur verið óvenju gott miðað við hversu erfiður Firestone völlurinn er alla jafna.

Tiger Woods sem hefur titil að verja siglir lygnan sjó í 25. sæti á einu höggi undir pari en ef hann ætlar að blanda sér í baráttu efstu manna á lokahringnum þarf hann að eiga góðan hring á morgun.

Mótshaldarar eru uggandi yfir þrumuveðri sem á að ganga yfir Firestone völlinn á morgun og því er óvíst hvenær kylfingar verða ræstir út á þriðja hring. Golfstöðin verður þó með puttann á púlsinum og mun sýna frá þriðja hring en áætluð útsending hefst klukkan 16:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×