Séra Halldór: Ábyrgðin er Guðlaugs og Gísla 30. júní 2010 14:05 Í ályktuninni er skorað á forystu og þingmenn Sjálfstæðisflokksins að íhuga stöðu sína. „
Ég ætla ekki að fylgja þessu meira eftir því ábyrgðin er þeirra. Það eiga allir að skilja þetta sem vilja," segir séra Halldór Gunnarsson um ályktun sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti um helgina. Gísli Marteinn Baldursson ætlar ekki að víkja sem borgarfulltrúi vegna ályktunarinnar og Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður, hefur ekki tjáð sig um innihald hennar. Í ályktuninni er skorað á forystu og þingmenn Sjálfstæðisflokksins að íhuga stöðu sína með tilliti til fylgis flokksins. Samþykkt var að styrkþegar flokksins ættu að sýna ábyrgð sína með því að segja af sér. Halldór flutti upphaflegu tillöguna fyrir fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu og nefndi sérstaklega þá Guðlaug Þór og Gísla í ræðu sinni. „Það er alveg ljóst hvað ég sagði. Ég var að höfða til þessa siðferðisskilnings sem okkar fulltrúar verða að hafa og bera með sér. Annars vegar Guðlaugur Þór gagnvart þessum háum styrkjum og hins vegar Gísli gagnvart því að Alþingi gleymdi að breyta reglunum því annars væri hann ekki inn í borgarstjórn," segir Halldór og vísar til þess að Gísli hefði fallið úr borgarstjórn ef samræmi hefði væri í kosningareglum. Á fjórða þúsund kjósendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík strikuðu yfir nafn Gísla í kosningunum í lok maí. Ef samræmi væri í kosningareglum til Alþingis og sveitastjórna hefði Gísli fallið niður um sæti og ekki náð sæti í borgarstjórn.
Tengdar fréttir Gísli Marteinn situr áfram Gísli Marteinn Baldursson ætlar ekki að víkja sem borgarfulltrúi vegna ályktunar sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti um helgina. Hann segist engar lánafyrirgreiðslur hafa fengið, hvorki kúlulán né önnur óvenjuleg lán. 28. júní 2010 17:02 Krafðist afsagnar Guðlaugs og Gísla Séra Halldór Gunnarsson kom í pontu nú fyrir stundu á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins og flutti tillögu sem fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu samþykkti á fundi á dögunum. 26. júní 2010 12:18 Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Innlent Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Innlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Guðmundur Árni leiðir áfram listann Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Sjá meira
Gísli Marteinn situr áfram Gísli Marteinn Baldursson ætlar ekki að víkja sem borgarfulltrúi vegna ályktunar sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti um helgina. Hann segist engar lánafyrirgreiðslur hafa fengið, hvorki kúlulán né önnur óvenjuleg lán. 28. júní 2010 17:02
Krafðist afsagnar Guðlaugs og Gísla Séra Halldór Gunnarsson kom í pontu nú fyrir stundu á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins og flutti tillögu sem fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu samþykkti á fundi á dögunum. 26. júní 2010 12:18